146. löggjafarþing — 47. fundur,  23. mars 2017.

millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll.

222. mál
[15:46]
Horfa

Flm. (Vilhjálmur Árnason) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir þingsályktunartillögu um millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll. Flutningsmenn ásamt mér, Vilhjálmi Árnasyni, eru Ari Trausti Guðmundsson, Ásmundur Friðriksson, Jóna Sólveig Elínardóttir, Oddný G. Harðardóttir, Páll Magnússon, Sigurður Ingi Jóhannsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Smári McCarthy. Tillagan hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að skoða hvort á Hornafjarðarflugvelli sé nægjanlegur búnaður og aðstaða til að hægt sé að sinna þaðan millilandaflugi með minni farþegaflugvélum og vélum í ferjuflugi sem núna hafa heimild til þess að fljúga um völlinn.“

Tillaga þessi hefur áður verið flutt í nokkur skipti en ekki náð fram að ganga og er nú endurflutt.

Hornafjarðarflugvöllur gegnir mikilvægu hlutverki í samgöngukerfi landsins eins og aðrir innanlandsflugvellir. Mikilvægt er að skoða áframhaldandi rekstur og uppbyggingu á svæðinu til hagsbóta fyrir heimamenn og atvinnulífið. Ljóst er að staðsetning vallarins býður upp á mikla möguleika til aukinnar umferðar ferðamanna, sérstaklega í kjölfar tilkomu Vatnajökulsþjóðgarðs. Til að svo megi verða er nauðsynlegt að skoða hvort til staðar sé nægjanlegur búnaður og aðstaða til að hægt sé að sinna þaðan millilandaflugi.

Í janúar 2008 unnu Flugstoðir greinargerð að beiðni sveitarstjórna og annarra hagsmunaaðila til að kanna möguleika á að gera flugvellina á Ísafirði, Vestmannaeyjum og Höfn að millilandaflugvöllum, til hvaða ráðstafana þyrfti að grípa til að slíkt gæti orðið að veruleika og hver kostnaðurinn við breytingar af þessu tagi gæti verið. Í greinargerðinni kemur fram að gera þarf endurbætur á öryggis- og eftirlitsþáttum á umræddum flugvöllum þannig að hægt verði að taka á móti minni farþegaflugvélum í millilandaflugi og vélum í ferjuflugi. Í greinargerðinni eru möguleikar og kostnaðaráhrif þessara ráðstafana metin en í aðalatriðum eru þrjár reglugerðir sem taka þarf tillit til. Gera þarf örlitlar breytingar á viðauka 1 við reglugerð um útlendinga nr. 53/2003 og bæta Hornafjarðarflugvelli við lista yfir skilgreindar landamærastöðvar. Auk þess þarf að uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 464/2007, um flugvelli vegna mannvirkja og vegna öryggisstjórnunarkerfis og flugvallarskírteinis og skilyrði reglugerðar nr. 985/2011, um flugvernd.

Samkvæmt 5. gr. reglugerðar nr. 464/2007 skulu millilandaflugvellir falla undir flokkinn flugvöllur I í skilningi reglugerðarinnar. Hornafjarðarflugvöllur fellur nú undir flokkinn skráður lendingarstaður. Þegar flugvöllur er fluttur úr flokknum lendingarstaður til áætlunarflugs upp í flugvöll í flokki I og skilgreindur sem millilandaflugvöllur hafa ákvæði framangreindra reglugerða fyrst og fremst áhrif á kostnað. Kröfur reglugerðar nr. 464/2007 til mannvirkja fela einkum í sér stofnkostnað vegna mannvirkja, svo sem öryggissvæða. Kostnaður vegna krafna reglugerðar nr. 464/2007 til gæða- og öryggisstjórnunarkerfis og flugvallarskírteinis hlýst af starfsliði til að vinna við verkefnin, bæði á vellinum sjálfum og hjá miðlægum deildum Isavia. Stofnkostnaður sem hlýst af þeim kröfum sem gerðar eru í reglugerð nr. 985/2011 er vegna vopnaleitarbúnaðar, breytinga á aðstöðu o.fl. auk þess sem kostnaðarauki er vegna viðbótarstarfsliðs við vopnaleit og umsýslu vegna flugverndar bæði á flugvellinum sjálfum sem og hjá miðlægum deildum Isavia.

Í þingsályktun um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2015–2018, nr. 65/145, kemur fram að Hornafjarðarflugvöllur skuli á tímabilinu fá samtals 139 millj. kr. til viðhalds og reglubundins endurnýjunar búnaðar. Við vinnslu málsins taldi meiri hlutinn þörf á að styrkja innanlandsflug sérstaklega og ekki aðeins þær leiðir sem þegar nytu styrkja heldur aðrar leiðir líka svo að lækka mætti verð og fjölga ferðum. Lagði hann til 300 millj. kr. byrjunarframlag árið 2018 sem lið í að styrkja stöðu flugsamgangna sem hluta af almenningssamgöngukerfinu. Þá taldi meiri hlutinn vert að skoða að veita minni vélum í millilandaflugi heimild til að lenda m.a. á Hornafirði. Það gæti hjálpað mikið til við dreifingu ferðamanna auk þess að minnka álag á Keflavíkurflugvelli og auka öryggi í flugi yfir landið.

Þrátt fyrir framangreint telja flutningsmenn þingsályktunartillögu þessarar mikilvægt að Hornafjarðarflugvöllur verði styrktur enn frekar og leggur áherslu á að skoðað verði hvort minni vélum í millilandaflugi verði veitt heimild til að lenda á Hornafirði, samanber framangreint nefndarálit meiri hlutans. Flutningsmenn leggja áherslu á mikilvægi þess að ráðist verði í þá vinnu sem fyrst til að treysta enn frekar atvinnulíf í Hornafirði og nágrenni og stuðla að frekari uppbyggingu og vexti Vatnajökulsþjóðgarðs.

Þá vil ég leggja sérstaka áherslu á að þetta er mjög mikilvægt verkefni fyrir innanlandsflugvellina, að fá aukin umsvif svo gera megi gera innanlandsflugið hagkvæmara og rekstur þessara flugvalla auðveldari. En í þessu tilfelli er þetta svo mikið öryggissjónarmið líka vegna staðsetningar flugvallarins. Þegar litlar flugvélar eru í ferjuflugi yfir hafið er mjög mikilvægt að geta millilent þarna til að fá eldsneyti og annað slíkt, og þar af leiðandi er það umhverfisvænt líka. Einnig þegar ferðamenn koma með flugvélum til landsins sem eru innan þess stærðarflokks sem talað er um hér, þá þurfa þeir ekki að fljúga á einhvern af þremur millilandaflugvöllunum og fljúga svo aftur til baka á Hornafjörð, eins og gerist oft, og losna líka við að fljúga yfir hálendið þegar þeir þurfa að lenda á Egilsstöðum. Það er því margt sem mælir með þessu. Kostnaðurinn er ekki verulegur og mun alltaf borga sig eins og allar aðrar samgöngubætur gera, þær borga sig alltaf fyrir rest.

Ég legg til að hæstv. umhverfis- og samgöngunefnd fái þetta mál til þóknanlegrar meðferðar.