146. löggjafarþing — 48. fundur, 27. mars 2017.
aðgerðir á kvennadeildum.
229. mál
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra er kannski kunnugt um að fæðingardeildir og þá sérstaklega umsjá og eftirfylgni á landsbyggðinni er víðast hvar hverfandi og sums staðar engin. Fækkun heilbrigðisstarfsfólks á landsbyggðinni er staðreynd. Hefur ráðherra einhver hug á því að bæta aðgengi að þjónustu annarra en lyflækninga í hinum dreifðu byggðum landsins?