störf þingsins.
Frú forseti. Mig langar að nýta þetta tækifæri til að beina spurningu til hv. formanns allsherjar- og menntamálanefndar, Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, í ljósi umræðu sem sprottið hefur upp um svokallaða 25 ára reglu. Eins og kunnugt er hefur alllengi verið í gildi reglugerð um það hvernig forgangsraða eigi inntöku nemenda í framhaldsskóla því að eðlilegt er að ekki komist allir nemendur inn í þann skóla sem þeir setja sem fyrsta val.
Með ákvörðun í fjárlögum árið 2014 var hins vegar tekin sú ákvörðun að hætta að greiða fyrir síðasta hópinn sem nefndur er í þessari reglugerð, þ.e. nemendur eldri en 25 ára, þó eingöngu í bóknámi. Þarna var tekin pólitísk ákvörðun sem hafði þær afleiðingar, ef marka má þau gögn sem liggja fyrir, að nemendum yfir 25 ára aldri fækkaði um 742 milli áranna 2014 og 2015, samkvæmt upplýsingum sem fram komu í svari menntamálaráðuneytisins við fyrirspurn hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur.
Fram kom í sjónvarpi um helgina að hv. þm. Nichole Leigh Mosty sagði að hún vildi afnema þessa reglu. Björt framtíð hafi sóst eftir því við gerð stjórnarsáttmála að á því yrði tekið, enda hafi ekki komið til þess að þessum nemendum hafi verið boðnir einhverjir aðrir valkostir nema þeir sem miklum mun dýrari eru en nám í framhaldsskóla.
Mig langar að spyrja hv. formann allsherjar- og menntamálanefndar: Er það Sjálfstæðisflokkurinn sem stendur í vegi fyrir því að þessi ákvörðun verði endurskoðuð? Hefur þetta verið rætt innan þingflokka meiri hlutans? Ég mun fagna því af öllum hug ef sú ákvörðun verður tekin að halda áfram að tryggja öllum nemendum vist í framhaldsskóla, eins og verið hefur aðalsmerki íslenska menntakerfisins og var allt til ársins 2014, þrátt fyrir að lengur hafi verið í gildi reglugerð um forgang (Forseti hringir.) nemenda. Þekki ég nú þetta mál ágætlega þar sem ég undirritaði þá reglugerð sjálf.
Ég bið hv. þingmann að vera því ekki að vísa í reglugerðina því að hér er um að ræða pólitíska ákvörðun um fjárveitingu til að veita öllum nemendum skólavist.