146. löggjafarþing — 49. fundur,  28. mars 2017.

störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa umræðu. Það er alltaf gott og mikilvægt að ræða menntamálin. Það hefur gætt misskilnings í umræðunni um að einhver slík regla hafi verið sett, af því að 25 ára og eldri er ekki meinaður aðgangur að nokkru bóknámi í framhaldsskólum. Auðvitað er verið að byggja á, eins og hv. þingmaður nefnir, forgangsröðun síðan hv. þingmaður var menntamálaráðherra og eina sem hefur gerst síðan er að skerpt hefur verið á þeirri forgangsröðun. Þar horfum við líka til hinna norrænu ríkjanna sem eru með miklu strangari reglu um 25 ára í sínum framhaldsskólum.

Ég held að mikilvægt sé að hugsa til þess af hverju og hvernig viljum við mæta þörfum nemenda sem eru 25 ára og eldri. Af hverju er mest brottfall hjá þeim nemendum og hefur verið um langa hríð? Jú, af því að, virðulegi forseti, skólinn, námsefnið og kennsluaðferðirnar er miðað að fólki á aldrinum 16–20 ára og það hentar einfaldlega ekki fólki á þrítugs- eða fertugsaldri að sitja á skólabekk með börnum sem hafa nýlokið í grunnskóla. Við þurfum að mæta þörfum þeirra og byggja upp kerfi, eins og verið er að gera, fyrir fólk sem vill sækja sér menntun á þessum aldri, taka meira tillit til t.d. vinnureynslu og meta hana inn í. Nú höfum við farið úr því að setja 600 milljónir í að setja um 1,5 milljarða inn í það fullorðinskerfi sem er svo mikilvægt til að mæta þörfum þessara nemenda. (Gripið fram í: Stefna Sjálfstæðisflokksins …)

Ég held líka að mikilvægt sé að það standi margir kostir þeim til boða. Það er tekið við nemendum á öllum aldri á starfsnámsbrautir, þetta á ekki við um iðn- og verknám. Við þurfum þá bara að ræða þá forgangsröðun. Ef hv. þingmanni finnst að við eigum ekki fara eftir hennar eigin forgangsröðun þá getum við rætt það og alveg sjálfsagt að gera það.

Virðulegi forseti. Það er mín skoðun (Forseti hringir.) að brýnt sé að við mætum þörfum (Gripið fram í.) allra nemenda og það er gert með því að framfylgja forgangsröðun hv. þm. (Forseti hringir.) Katrínar Jakobsdóttur (Gripið fram í: … ósammála …) og gera námið þannig að það henti öllum aldurshópum. (Gripið fram í.)