146. löggjafarþing — 49. fundur,  28. mars 2017.

störf þingsins.

[14:03]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Í óundirbúnum fyrirspurnum í gær spurði hv. þm. Þórunn Egilsdóttir hæstv. heilbrigðisráðherra um stefnu Bjartrar framtíðar í heilbrigðismálum og greiðsluþátttöku sjúklinga. Ráðherra sagði, með leyfi forseta:

„Nú hef ég gegnt embætti ráðherra í rúma tvo mánuði og í þeim störfum starfað eftir fjárlögum fyrir árið 2017 sem samþykkt voru af Alþingi Íslendinga áður en þessi ríkisstjórn tók við.“

Nú var það svo að þingflokkur ráðherra tók þátt í að laga þá hörmung sem þau fjárlög voru fyrir heilbrigðiskerfið. Eitt af kosningaloforðum Pírata var endurreisn í heilbrigðiskerfinu. Með því hugarfari fórum við í fjárlagavinnuna. Það varð strax ljóst að ekki var hljómgrunnur fyrir hugmyndum Pírata meðal meirihlutaflokkanna, annars hefði lagfæring fjárlaga vegna heilbrigðismála verið meiri. Þar hefði stuðningur Bjartrar framtíðar verið vel þeginn enda var kosningaáhersla þess flokks líka endurreisn heilbrigðiskerfisins.

Af því tilefni vil ég eiga orðastað við hv. formann þingflokks Bjartrar framtíðar, Theodóru S. Þorsteinsdóttur, en hún sat einmitt í fjárlaganefnd í desember sl. þegar þau fjárlög sem hæstv. heilbrigðisráðherra kvartar undan voru lagfærð. Nú veit ég hvaða áherslur Bjartrar framtíðar komu fram í umfjöllun nefndarinnar. Ég verð að segja að ef þær áherslur hefðu orðið niðurstaðan væri hæstv. heilbrigðisráðherra í enn verri málum fjárhagslega. Því vil ég biðja hv. formann þingflokks Bjartrar framtíðar og nefndarmann í fjárlaganefnd að upplýsa okkur um áherslur eða réttara sagt skort á áherslum flokksins í fjárlagalagfæringum í desember sl. Hæstv. heilbrigðisráðherra getur nefnilega engum kennt um nema eigin flokki og þá frekar þakkað Pírötum fyrir að berjast fyrir því sem þó náðist.