146. löggjafarþing — 49. fundur,  28. mars 2017.

gengisþróun og afkoma útflutningsgreina.

[14:37]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegur forseti. Eins og aðrir vil ég þakka hv. málshefjanda fyrir þessa umræðu og ráðherra fyrir að vera til svara. Það er svolítið sérstök umræða að því leyti til að gamlir kunningjar bregða hér á leik, ef ég má orða þannig. Það er einhver ofsatrú á töfralausnir sem eiga að birtast frá Evrópu, hjá vinstri mönnum sérstaklega og Viðreisn sem er líklega ekki vinstri flokkur heldur hægri flokkur. (Gripið fram í.) Það er mjög merkilegt að heyra þetta. Síðan segir hæstv. ráðherra að Viðreisn hafi verið eini flokkurinn sem hafi talað um peningamál í aðdraganda kosninga. Ég hugsa að hann sé líka eini ráðherrann í heiminum, alla vega í Vestur-Evrópu, sem talar niður eigin gjaldmiðil. Það er svolítið merkilegt að gera það á sama tíma.

Það er hins vegar rétt hjá ráðherra að vextir þurfa að lækka og um það held ég við séum öll sammála, að við þurfum að fara í endurskoðun á því hvernig peningastefna Seðlabankans er rekin. Við erum sammála um það.

Hér hefur aðeins verið komið inn á Granda. Ég ætla ekki að eyða miklum tíma í það hér, það er hins vegar mál sem við öll vonumst til að stjórnendur Granda setjist yfir aftur og axli ábyrgð þar.

Fjármálaráðherra talar um hagstjórn til að vinna gegn styrkingu krónunnar. Ég hlakka til að sjá þá hagstjórn, ég hlakka til að sjá hvað ráðherrann ætlar að gera raunverulega. Mig langar hins vegar að spyrja ráðherrann hvort til greina komi að hægja á ákveðnum verkefnum eða jafnvel fresta þeim og þá á ég til dæmis við framkvæmdir við Leifsstöð þar sem Isavia virðist einhvern veginn halda að það fyrirtæki sé óháð öðrum framkvæmdum í landinu, en tugmilljarða eða hundraða milljarða framkvæmdir þar hafa að sjálfsögðu áhrif á aðra framkvæmdamöguleika í landinu og þar með hættu á þenslu. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um þetta.

Síðan verð ég að segja að það er vitanlega alveg ótrúlegt að hlusta á það að hér talar hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að við getum ekki notað smáskammtalækningar. Ég fæ ekki betur séð en að ESB-glýjan sé í augunum á hæstv. ráðherra, sem og vitanlega flestum í þeim ágæta flokki, Viðreisn, þrátt fyrir að við höfum séð Evrópu loga stafnanna á milli út af þessari evru — og enn hefur enginn sem ég man eftir bent á það hér á Íslandi að við hefðum verið betur sett með evru 2008.