146. löggjafarþing — 49. fundur,  28. mars 2017.

fjármálastefna 2017--2022.

66. mál
[20:11]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Benedikt Jóhannesson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hún setti hér fram ýmislegt sem er áhugavert og umhugsunarefni, vissulega, þegar sett er fram þessi þrenna af stjórntækjum sem ríkið hefur. En ég vil þó fyrst spyrja: Hvaða áhrif hefur það aukna aðhald sem boðað er í fjármálastefnunni umfram það sem áður var? Hvers vegna er verið að skila meiri afgangi af hinu opinbera en áður var? Skýringin er sú að við erum að reyna að skapa aðstöðu til að lækka vexti. Við vitum að þó að mörg ríki myndu öfunda það íslenska af skuldastöðunni eru nánast engin ríki sem myndu öfunda okkur af vaxtagreiðslunum. Þetta er alveg sami veruleiki sem fyrirtæki og einstaklingar á Íslandi þurfa að eiga við. Þess vegna erum við að reyna að skapa aðstöðu til að geta lækkað vexti í framtíðinni.

Ég tek undir með hv. þingmanni að það eru margir byrjunarerfiðleikar við að setja fram bæði fjármálastefnuna og fjármálaáætlunina. Tíminn var þrengri en fólk hugsaði sér upprunalega þegar þetta regluverk var sett upp. En mig myndi langa til að spyrja hv. þingmann hve langan tíma væri hæfilegt að nýta til þess að setja fram í fyrsta lagi fjármálastefnuna þannig að allir fengju nægan tíma til að ræða hana og svo í framhaldinu fjármálaáætlunina. Þingmaðurinn vísar hér í afgang, hve mikinn afgang telur hv. þingmaður að sé hæfilegt að hafa af ríkisfjármálum?