146. löggjafarþing — 50. fundur, 29. mars 2017.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneyti þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 392, um ráðstafanir ríkislóða á höfuðborgarsvæðinu, frá Eygló Harðardóttur.
Borist hafa tvö bréf frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 324, um stuðning við fráveituframkvæmdir, frá Ara Trausta Guðmundssyni, og á þskj. 221, um auðlindir og auðlindagjald, frá Lilju Sigurðardóttur.