Fjármálaeftirlitið og upplýsingar um kaupendur banka.
Frú forseti. Ég tel mig hafa svarað fyrri spurningum hv. þingmanns með nokkuð óyggjandi hætti. Ég tel að þetta sé afar mikilvægt, ég tel það svo mikilvægt að ég hef skrifað Fjármálaeftirlitinu bréf með spurningum þar um. Ég hef jafnframt tilkynnt eftirlitinu að ég muni birta svör þess við spurningum mínum þegar þau berast.
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ekki boðvald yfir Fjármálaeftirlitinu og sem betur fer er Fjármálaeftirlitið sjálfstætt stjórnvald. Þess vegna get ég ekki með neinum hætti né vil ég þvinga Fjármálaeftirlitið til einhverra sérstakra aðgerða en við verðum að ætlast til þess að eftirlitsstofnanir ríkisins, hverjar sem þær eru og á hvaða tíma sem þær starfa, geri allt sem í þeirra valdi stendur til að upplýsa um mál af þessu tagi, mál sem skipta þjóðina öllu máli, mál sem spila meginhlutverk í efnahagslífi landsins.
Það er von að spurt sé, eftir að stofnanirnar brugðust svo herfilega á sínum tíma. Það má ekki endurtaka sig.