rannsókn á sölu ríkisbankanna.
Frú forseti. Hv. þingmaður misskilur það ef hann heldur að málið sé á forræði þess sem hér stendur. Málið er einfaldlega, eftir sérstaka samþykkt á síðasta sumri, í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Það var samþykkt á Alþingi að samhliða þeirri rannsókn sem er nýlokið skyldi nefndin fara ofan í þörfina fyrir þetta. Það sem ég hef gert í umræðum um þessi mál er að vekja athygli á öllu því sem þegar hefur komið fram og hv. þingmaður getur ekki bent á eitt einasta atriði máli sínu til stuðnings sem stendur út af eftir allar þær rannsóknir sem Ríkisendurskoðun hefur framkvæmt. Og þetta skiptir máli. Ef menn ætla að setja af stað rannsókn þá þarf að liggja fyrir vel skilgreint hvað á að rannsaka. Við höfum á undanförnum árum látið rannsaka Íbúðalánasjóð. Við létum sömuleiðis rannsaka fall sparisjóðanna. Við vörðum til þessara tveggja rannsóknarmála 900 millj. kr.
Mitt innlegg í umræðuna er þetta: Nefndin á þinginu sem er með málið verður einfaldlega að komast til botns í því (Forseti hringir.) hvaða atriði það eru sem standa út af eftir allar hinar fyrri rannsóknir. Séu útafstandandi atriði mun ég að sjálfsögðu, eins og ég hef gert hingað til, styðja að farið verði í að skoða þau mál.