146. löggjafarþing — 51. fundur,  30. mars 2017.

fjármálastefna 2017--2022.

66. mál
[15:29]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Skiptum aðeins um gír, tölum um þetta þak sem er sett, 41,5%. Nú er einmitt dálítið erfitt að fylgja því þaki þegar maður áttar sig á því að verið er að fara eftir vergri landsframleiðslu þessa árs. Hún er ekki ljós fyrr en í lok ársins og þá veit maður það í rauninni ekki fyrr en eftir á hvort við vorum undir 41,5% eða ekki. Það verður dálítið vandræðalegt kannski hálfu ári seinna: Já, landsframleiðslan, hún var aðeins lægri en við bjuggumst við þannig að við fórum yfir þakið. Úpps, hvað eigum við nú að gera? Það er kannski þess vegna sem fjármálaráð gerir athugasemdir um þetta og það sé ekki hluti af lögum um opinber fjármál að hafa þetta takmark.