varnir gegn mengun hafs og stranda og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra greinargóð svör. Hún hefur tileinkað sér þann eiginleika sem er góður í þessu starfi að geta bæði talað við fólk hér og leitað ráða og hlustað á spurningar í einu, þannig að ég dáist að því, ég held hún hafi náð öllum spurningunum sem ég kom hér fram með.
Mig langar í síðara andsvari mínu að koma aðeins inn á það sem mér finnst mjög áhugaverð umræða almennt og komið er aðeins inn á í þessu frumvarpi til laga, þ.e. hvort umhverfisbrot séu skilgreind sjálfstætt eða talin til svokallaðra efnahagsbrota. Hér skil ég það ekki öðruvísi í þessu lagafrumvarpi en að miðað sé við viðtekna skilgreiningu á efnahagsbrotum, með leyfi forseta:
„… að átt sé við refsiverð brot sem framin eru í hagnaðarskyni, kerfisbundið og reglulega í annars löglegri atvinnustarfsemi einstaklinga og lögaðila.“
Svo segir síðar í greinargerðinni, með leyfi forseta:
„Þá mæla rök með því að heimfæra brot undir hegningarlög ef það hefur haft í för með sér fjárhagslegan ávinning sem á til dæmis við þegar komist er hjá útgjöldum sem hljótast af lögboðnum mengunarvörnum.“
Af því að þetta er umræða sem ég veit að hæstv. ráðherra þekkir vel hafandi fylgst vel með í þessum geira í störfum sínum þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Er það í raun niðurstaða stjórnvalda núna að umhverfisbrot verði skilgreint sem efnahagsbrot og falli þá undir almenn hegningarlög? Þá er ég ekki bara að horfa á þetta frumvarp heldur almennt. Munum við sjá þá skilgreiningu á umhverfisbrotum og hvort slík skilgreining verði notuð í frekari tilvikum en þessum hér?