varnir gegn mengun hafs og stranda og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Varðandi það sem við erum kannski oft að fást við hér af því hv. þingmaður talaði um brot í fjárhagslegum tilgangi, eitthvað svoleiðis (Gripið fram í: Efnahagsbrot.) efnahagsbrot, fyrirgefðu, þá er það kannski þannig að hættan er að fyrirtæki með ákveðna starfsemi hagnist á því að fylgja ekki lögum og reglum. Það gæti t.d. verið þannig tilvik að sektirnar þættu það litlar að ekki svaraði kostnaði að fara einhvern veginn að breyta um hegðun, borga frekar sektirnar en að gera þetta rétt. Við verðum auðvitað að passa að hafa löggjöfina ekki þannig því að þá þjónar hún ekki tilgangi sínum.
Svo getur þetta auðvitað líka átt við einhver brot sem einstaklingur eða einhver annar aðili fremur, en hefur kannski ekki beinan efnahagslegan ábata af því ef maður getur sagt sem svo, þannig að það er kannski tvennt í þessu. Hér eru almenn hegningarlög líka undir.