varnir gegn mengun hafs og stranda og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Ég ítreka þakkir mínar til hæstv. ráðherra — sem ég útdeildi með glöðu geði hér í andsvörum — fyrir að fara yfir málið. Í raun og veru finnst mér málið mjög jákvætt og líka sá tónn sem ég heyrði í máli hæstv. ráðherra sem einnig er að finna í frumvarpinu. Ég átti orðastað við ráðherrann um skilgreininguna á umhverfisbrotum og ég held að það sé umræða sem við þurfum að taka dálítið dýpra almennt, ekki bara í þessu máli. Hæstv. ráðherra fór ágætlega yfir það að í sumum tilvikum geta umhverfisbrot verið þannig að sá sem brýtur af sér hlýtur af brotunum efnahagslegan ábata. Hann kom svo inn á það, sem ég ætlaði að gera að umtalsefni, þ.e. að það á ekki við í öllum tilvikum heldur er stundum um slóðaskap, trassaskap, að ræða, eða að menn ákveði að fara ekki eftir lögum og reglugerðum hverju sem sætir. Ég hef verið áhugamaður um að umhverfisbrot séu skilgreind sjálfstætt. Það þýðir ekki að í ákveðnum tilvikum eins og hér séu þau líka skilgreind sem efnahagsbrot og að hægt sé að beita almennum hegningarlögum þar um, en einmitt í þeim tilvikum sem hæstv. ráðherra fór hér ágætlega yfir í svari sínu við andsvari mínu áðan geta þau tilvik verið uppi að ítrekuð umhverfisbrot, sem geta haft alvarlegar afleiðingar, hafi í raun ekki haft neinn efnahagslegan ávinning í för með sér.
Ég held að það sé eitt af því sem við þurfum að gera að fara almennt yfir lagasafnið okkar með nútímalega hugsun í umhverfismálum að leiðarljósi og horfa aðeins á þessi mál upp á nýtt út frá því. Ég held að þörf sé á því að fara yfir allt lagasafnið okkar og skoða það. Ég hef heyrt hæstv. ráðherra tala um nokkur mál eins og loftslagsmál og ég hef verið ánægður með þann tón sem ég heyrt hjá honum hvað varðar heildarendurskoðun á allri löggjöf og heildarsýn í þessum málaflokki. Ég er ekki að kvarta og kveina yfir því að þetta hafi ekki verið gert, heldur meira að taka undir þá nýju hugsun sem mér finnst samstaða vera að myndast um þegar kemur að umhverfismálum. Mér finnst þetta mál vera hluti af því.
Ég játa að lagatextar eru ekki einföldustu textar eða mesta skemmtilesning sem maður getur tekið sér fyrir hendur að rýna í en eins og ég skil þetta er bætt við skipum sem þjónusta fiskeldi, að þau eigi að greiða gjald — nú er ég búinn að týna mér í öllum þessum yfirstrikunum sem ég er með hér — þ.e. að þau fái ekki lengur þá undanþágu sem var; úrgangsgjald, það er orðið sem ég er að leita að. Ég tel mjög mikilvægt að svo sé. Ég er líka ánægður með að ekki er eingöngu verið að horfa á aðilann sem fremur brot heldur er horft til, eins og í 4. gr., þess að skortur á eftirliti eða umsjón geti einnig haft í för með sér sektir og verið refsivert. Ég tel mikilvægt að ekki sé hægt að skjóta sér undan því að það hafi ekki verið útgerðaraðili eða sá sem er umsjónaraðili sem hafi framið umrætt brot heldur starfsmenn eða hvernig sem það er; þetta er nokkurs konar keðjuábyrgð ef ég má leyfa mér að nota þá myndlíkingu um þetta.
Almennt séð finnst mér efni frumvarpsins mjög gott við fyrsta yfirlestur. Ég hlakka til að við lesum frumvarpið og rýnum betur í það í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Hér eru þættir sem komið er inn á í frumvarpinu sem eru mjög mikilvægir. Það er talað um samráðið og athugasemdir, sem ýmist hefur verið tekið tillit til eða ekki. Ég er ánægður með þá línu sem hér er lögð. Í frumvarpinu segir, og það var það sem ég byrjaði á að tala um, með leyfi forseta:
„Í ritum erlendra fræðimanna um tilskipanirnar tvær“ — þ.e. þessar EES-tilskipanir sem verið er að tala um — „kemur fram að innleiðing gerðanna verði væntanlega einföld í aðildarríkjum sem hafi þegar víðtæk refsiviðurlög við brotum sem varða umhverfið en í þeim ríkjum sem refsiviðurlög við brotum sem varða umhverfið er ábótavant geti tilskipanirnar leitt til mikilvægra breytinga.“
Ég held að þetta frumvarp, þó að hér sé sagt að margt af þessu sé þegar við lýði, og sá andi sem er í því hafi meiri breytingar í för með sér en kannski er talað um hér, ef við tökum það föstum tökum að fara eftir því sem hér stendur. Eitt er að viðurlög séu við brotum, annað er hvort þeim viðurlögum sé beitt. Ég lít á þetta frumvarp sem lið í því að taka fastar og alvarlegar á umhverfisbrotum. Ég ítreka þá skoðun mína að almennt séð þurfum við að setjast yfir þau mál. Umhverfisbrot eru alvarleg brot, sama hvort þau hafa efnahagslegan ávinning í för með sér eða ekki.