varnir gegn mengun hafs og stranda og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Þetta er áhugaverð umræða og gagnlegt frumvarp, á því leikur enginn vafi. Ég þakka fyrir þá framlögn og umræðu sem hefur orðið og er hreint ekki ósáttur við þetta frumvarp að nokkru leyti, þvert á móti. Ég ætla að nota tækifærið og koma með tiltekna ábendingu sem má kannski segja að sé að hluta til sagnfræði. Í áratugi tíðkaðist það að urða allan úrgang á Íslandi. Þetta voru lítil sveitarfélög með lítinn úrgang, en líka voru stór sveitarfélög með mikinn úrgang. Þarna urðu til safnhaugar sem eru núna undir jarðlögum. Þetta var fyrir flokkun úrgangs og endurvinnslu. Hér í Reykjavík eru þetta t.d. sorphaugarnir, ef við köllum það svo, inn við Elliðavoginn inn í Gufunes og eins þar sem er kallað Geirsnef. Þetta eru gríðarstórir haugar, t.d. þeir sem ég nefndi með nafni, svo eru aðrir í sumum fjörðum landsins þar sem safnhaugarnir liggja í raun og veru í uppfyllingum þannig að sjórinn gengur inn og út um þá, annars staðar kemur grunnvatn aðvífandi og rennur í gegnum þessa hauga.
Það þarf ekki mikla ímyndun til þess að sjá hvernig það fer með þau spilliefni, hvort það var málning eða olíur eða þéttar með mjög hættulegum efnum. Þarna liggja málmar, jafnvel batterí með kvikasilfri og öðru slíku. Það þarf ekki mikla ímyndun til að sjá fyrir sér hvað þarna dylst. Allt þetta rotnar og grotnar smám saman í sundur. Það gengur upp úr haugunum metan sem er gróðurhúsalofttegund, eins og allir vita.
Nú hefur farið fram vöktun í einhverjum mæli á þessum stöðum, það er auðvitað á höndum sveitarfélaganna. Það hafa komið fram niðurstöður sem sýna fram á það að þarna er um mengandi efni að ræða sem þvost út í sjóinn eða renna út í hann með grunnvatni og með flóði og fjöru.
Nú er það svo að hægt er að endurvinna svona hauga. Það er til í dæminu að það hafi verið gert erlendis og endurunnir málmar hafa að hluta til greitt fyrir kostnaðinum. Ég ætla ekki að orðlengja þetta mjög, þetta kemur óbeint við frumvarpið. Ég vil aðeins vekja athygli hæstv. ráðherra á þessari stöðu sem er að mörgu leyti óljós. Sumir hafa gengið svo langt að kalla þetta tifandi tímasprengju. Ég ætla að hvetja til þess að farið verði í einhvers konar framhaldsvinnu eftir að þetta frumvarp er gengið til hæstv. nefndar og síðan sennilega og örugglega samþykkt hér á Alþingi, að það séu næg verkefni til að hyggja að gömlum safnhaugum, sem er til yfirlit yfir hvar eru en eru allt of óljósir til þess að okkur geti liðið fullkomlega vel með það.