146. löggjafarþing — 53. fundur,  3. apr. 2017.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 46/2016 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn.

265. mál
[19:07]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 121/2016 sem mælir fyrir um að tilskipun Evrópusambandsins frá 2014, um skil á menningarminjum, verði tekin upp í EES-samninginn.

EES-samningurinn gengur m.a. út á að ekki sé heimilt að takmarka viðskipti með vörur innan Evrópska efnahagssvæðisins. Hins vegar eru á þeirri reglu ákveðnar undantekningar. Til dæmis er EES-ríkjunum heimilt að setja bann við að menningarleg verðmæti séu flutt úr landi. Í þeirri tilskipun sem hér er lagt til að verði tekin upp í EES-samninginn eru settar reglur um hvernig skuli standa að skilum á menningarminjum sem hafa verið fluttar úr EES-ríki í trássi við bann í viðkomandi ríki. Kemur tilskipun í stað eldri tilskipunar um þetta efni og miðar þessi nýja tilskipun að því að auðvelda skil á menningarminjum sem hafa verið flutt ólöglega úr landi.

Hér á landi eru í gildi lög um skil á menningarverðmætum til annarra landa og kallar innleiðing þessarar tilskipunar á breytingu á þeim lögum. Ákvörðun var því tekin með stjórnskipulegum fyrirvara af hálfu Íslands í sameiginlegu EES-nefndinni. Samkvæmt lögum um þingsköp Alþingis ber að aflétta slíkum fyrirvara með þingsályktunartillögu. Því er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst svo aflétta megi hinum stjórnskipulega fyrirvara.

Ég legg til, virðulegi forseti, að lokinni umræðu verði tillögu þessari vísað til hv. utanríkismálanefndar.