146. löggjafarþing — 54. fundur,  4. apr. 2017.

hlutafélög og einkahlutafélög.

410. mál
[17:24]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrir þetta fína frumvarp. Ég hlakka til að veita því meðferð í efnahags- og viðskiptanefnd. Við erum að ræða um rafræna fyrirtækjaskrá og það hefur verið mikið áhugamál hjá mér og Pírötum að opna fyrirtækjaskrá, ársreikningaskrá og hluthafaskrá fyrir almenning þannig að hægt sé að skoða hvert eignarhaldið er og breytingar á því og helst að það sé gert endurgjaldslaust. Það hefur komið fram í máli hæstv. fjármálaráðherra að hann sé hlynntur þannig fyrirkomulagi. Mig langaði til að leita eftir skoðun hæstv. ráðherra á þessu máli, hvort þetta sé það sem koma skal að mati hennar, sér í lagi með tilliti til spurningarinnar um kostnað og almennt aðgengi.