heimsókn forseta þjóðþings Austurríkis.
Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að forseti þjóðþings Austurríkis, Doris Bures, er stödd á þingpöllum. Með henni í för er sendinefnd austurrískra þingmanna. Forseti þjóðþings Austurríkis er hér í heimsókn í Alþingishúsinu í tengslum við heimsókn til Íslands í boði forseta Alþingis. Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta þjóðþings Austurríkis, Doris Bures, og sendinefnd velkomna í Alþingishúsið og ég vænti þess að heimsókn þeirra til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru á milli landa okkar.
Alþingi vottar forseta þjóðþings Austurríkis og austurrísku þjóðinni vináttu og virðingu og ég bið hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum.
[Þingmenn risu úr sætum.]