varamenn taka þingsæti.
Jón Ragnar Ríkharðsson hefur undirskrifað drengskaparheit að stjórnarskránni og er boðinn velkominn til starfa á Alþingi.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að 4. þm. Reykv. s., Sigríður Á. Andersen, geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Jóhannes Stefánsson.
Kjörbréf hans hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Jóhannes Stefánsson, 4. þm. Reykv. s., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]