146. löggjafarþing — 56. fundur,  6. apr. 2017.

fjármálastefna 2017--2022.

66. mál
[11:13]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við horfum hér fram á fimm ár í miklu aðhaldi á sama tíma og allir stjórnmálaflokkar, líka þeir sem sitja í ríkisstjórn, hafa undirbúið og undirbyggt miklar væntingar meðal landsmanna um að nú loks verði staðið við fjárfestingar í innviðum landsins. Þessi stefna er að mati okkar Framsóknarmanna ekki sú skynsamlega blandaða hagstjórn sem þarf að beita á þessum tíma. Við gerum okkur vel grein fyrir að við erum á erfiðum stað í hagsveiflunni. Við verðum hins vegar að fara í nauðsynlegar fjárfestingar. Nú er til að mynda tækifæri til að vega á móti þenslunni og fara í verulegar fjárfestingar úti á landi, á landsbyggðinni, þar sem þenslan er minni, þar sem hagvöxturinn var ekki 7,2% á síðasta ári. Við teljum að þetta sé of aðhaldssöm stefna. Við teljum að hún sýni athafnaleysi sem er líka pólitík (Forseti hringir.) hægri mennskunnar. Við munum því segja nei við þessari stefnu.