146. löggjafarþing — 56. fundur,  6. apr. 2017.

útlendingar.

236. mál
[11:57]
Horfa

Ásta Guðrún Helgadóttir (P):

Virðulegi forseti. Mig langar bara til að ítreka að ástæðan fyrir því að við í Pírötum sitjum hjá við þessa atkvæðagreiðslu er einfaldlega út af 2. gr. En 1. gr. þessa frumvarps er algjörlega hræðileg þannig að við greiddum atkvæði á móti henni. Þar sem þarna er líka verið að laga og bæta réttarstöðu fólks munum við sitja hjá við afgreiðslu þessa frumvarps í heild.