146. löggjafarþing — 57. fundur,  6. apr. 2017.

fjármálaáætlun 2018--2022.

402. mál
[15:34]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þessar spurningar. Þær eru ansi margar og stórar fyrir tvær mínútur en ég ætla að reyna að koma inn á eins mikið og ég get. Ég gleymdi að svara áðan varðandi annars konar gjaldtöku vegna áforma um vasksbreytinguna. Ég lít svo á að við séum ekki að ræða komugjöld og ekki náttúrupassa. Það má alveg segja að gengið hafi brösuglega að ná samstöðu um gjaldtöku. Með þessu skilar atvinnugreinin vissulega auknum fjármunum inn í ríkissjóð þrátt fyrir að það sé ekki skattur á hagnað heldur sé greininni falið að sækja þennan skatt til ferðamannanna sjálfra.

Varðandi gagnrýni um samráðið er mögulega erfitt að hafa samráð um skattahækkanir. Þetta er ferli sem var unnið í fjármálaráðuneytinu og hvað varðar aðgang að gögnum þar myndi ég ætla að fjármálaráðuneytið gæti aðstoðað.

Varðandi orkuskiptin og þá þingsályktunartillögu eru þar fjölmargar aðgerðir sem teygja síðan anga sína út í hin ýmsu ráðuneyti.

Varðandi loftslagsmálin er það málefni sem er á ábyrgð umhverfisráðherra. Orkuskiptin eru einn þáttur þar undir. Við erum t.d. að setja fjármuni í innviðauppbyggingu úti um land í tengslum við rafbílavæðingu. Það eru t.d. 67 milljónir sem fara núna í styrki og verður áfram.

Út af nýsköpunarspurningu þá verður lögð áhersla á það en í mínum huga snýr það ekki allt að auknum fjármunum eða þörf á þeim. Við erum með Tækniþróunarsjóð sem hefur fengið aukna fjármuni og þetta snýr líka að því að hugsa hlutina upp á nýtt og öðruvísi, setja málið á dagskrá, vegna þess að nýsköpun fer þvert á allar atvinnugreinar.