146. löggjafarþing — 57. fundur,  6. apr. 2017.

fjármálaáætlun 2018--2022.

402. mál
[16:07]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svörin. Ég er sammála henni um að góð aðgangsstýring geti verið lykillinn að þessu. Ég velti fyrir mér hvort einhverjar aðrar leiðir séu til þess líka.

Síðan langar mig að spyrja örstutt að einu atriði sem ég hjó eftir og varðar aðgerð. Það er sennilega 2. markmið í ferðaþjónustunni, sem er aukið umfang rannsókna og nýsköpunar með tilliti til sjálfbærni og aukins virðisauka. Ein af aðgerðunum sem þar er beitt er að endurmeta þátttöku í alþjóðlegu samstarfi til að stuðla að markvissari áætlanagerð, þekkingaröflun og skilvirkri stjórnsýslu.

Ég verð alltaf dálítið smeykur þegar menn tala um að endurskoða þátttöku í alþjóðlegu samstarfi. Það er hægt að endurtaka þá þátttöku á margan hátt. Nú voru Bretar t.d. að endurskoða þátttöku sína í Evrópusambandinu. Svo eru til flokkar sem vilja endurskoða aðild að Schengen. Ég er t.d. ekki tilbúinn í þá endurskoðun. Mig langar því að fá fullvissu fyrir því þegar er talað um að endurmeta þátttöku í alþjóðlegu samstarfi með það að markmiði að auka rannsóknir hvort ekki sé örugglega átt við að við ætlum að fara í meira [Hlátur í þingsal.] samstarf en ekki að draga okkur úr því samstarfi sem við höfum þegar verið í.