146. löggjafarþing — 57. fundur,  6. apr. 2017.

fjármálaáætlun 2018--2022.

402. mál
[17:24]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hefur hlýtt á sjónarmið hv. þingmanna og mun sjá til þess eftir atvikum að þau komist rétta boðleið og á réttan vettvang til forseta og formanna þingflokka og að viðkomandi ráðherrum verði gert það ljóst, sem mun örugglega gleðja þá, að þeirra hafi verið sárt saknað.