fjármálaáætlun 2018--2022.
Frú forseti. Ég vil taka undir það með hv. þm. Guðjóni S. Brjánssyni að hjúkrunarrými og þjónusta við aldraða séu einhver mesta áskorun sem við horfum fram á á næstu árum í heilbrigðisþjónustunni. Með fjölgun aldraðra, með öldrun þjóðarinnar, verður þetta sennilega einhver mesta áskorun næstu áratuga.
Góðu fréttirnar eru að á sama tíma og bara á síðustu fimm árum, sem ég vil taka fram að er jafn langur tími og þessi fjármálaáætlun nær til, hafa orðið stórstígar breytingar í möguleikum okkur til þess bæði að veita þjónustu og lækna sjúkdóma, auka lífsgæði einstaklinga. Við horfum dálítið inn í óljósa tíma þótt við horfum ekki nema til næstu fimm ára.
Hjúkrunarrýmin nýju 292, dagdvalarrýmin nýju, eru fjármögnuð í fjármálaáætluninni en það skal taka fram að þau eru að bætast við, það er verið að byggja þau upp á öllu tímabilinu. Þau verða ekki öll komin í notkun á sama tíma og verða ekki öll í rekstri allt tímabilið.
Varðandi sjúkrahúsþjónustuna er það ekki rétt að ekki sé verið að bæta neinu við. Það er vissulega rétt að árið 2018 hefði maður gjarnan viljað sjá meiri viðbætur, en grunnurinn sem unnið er út frá byggir á fjárlögum fyrir 2017 og það þurfti hvorki þessa ríkisstjórn né aðra til þess að þverpólitískt Alþingi án skýrs meiri hluta skilaði 10% viðbót í fjárlögum í ár frá árinu á undan í heilbrigðisþjónustuna, þar á meðal sjúkrahúsþjónustuna. Þeirri viðbót höldum við (Forseti hringir.) inni í fjármálaáætlun fyrir árið 2018 og áfram út tímabilið.