146. löggjafarþing — 58. fundur,  24. apr. 2017.

rannsókn kjörbréfs.

[15:00]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Viðreisnar um að Jón Steindór Valdimarsson, 13. þm. Suðvest., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því er óskað eftir því að í dag taki Ómar Ásbjörn Óskarsson sæti á Alþingi, en hann er 4. varamaður á lista Viðreisnar í kjördæminu. 1. og 3. varamaður á lista í kjördæminu hafa boðað forföll en 2. varamaður á lista tekur sæti fyrir annan þingmann.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Ómari Ásbirni Óskarssyni. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kjörbréfið.