146. löggjafarþing — 58. fundur,  24. apr. 2017.

orð heilbrigðisráðherra um einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu.

[15:31]
Horfa

Nichole Leigh Mosty (Bf):

Virðulegur forseti. Bara til að skerpa á hlutunum fyrir þá þingmenn sem ekki voru á fundi velferðarnefndar í morgun og hafa það ekki á hreinu hvað þar kom fram þá var það þannig að ég var að fylgja þeim fyrirmælum sem mér voru gefin og mun leita eftir svari á fundi með þingflokksformönnum um hvort ég megi bjóða fleirum á fund nefndarinnar. Við í velferðarnefnd erum ef til vill með þyngstu og mestu málin og ég vissi ekki alveg hvar ég átti að byrja varðandi gestakomur. Það er sem sagt þannig að ég er búin að hafa samband við ritara og fulltrúar Landspítala munu mæta til okkar á föstudaginn.