orð heilbrigðisráðherra um einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu.
Virðulegi forseti. Það ætti kannski ekki að koma mér á óvart sá hroki sem birtist í orðum hv. þm. Brynjars Níelssonar og hvernig hann talaði hér niður til mín með því að þurfa að upplýsa mig um það hvernig ráðherra ætti að haga sér. Það er hins vegar svo að hér er nýr ráðherra að koma með nýja túlkun á því hvað þurfi til varðandi það að hefja rekstur á einkareknu sjúkrahúsi, túlkun sem við höfum ekki heyrt áður frá fyrrverandi heilbrigðisráðherrum. Við gerum líka athugasemdir við að svör ráðherrans í ræðustól séu síðan ekki í samræmi við það sem hann hefur gert eða ekki gert. Það er það sem við erum að gera athugasemd við hér um fundarstjórn. Þetta er stórmál. Þetta snýr ekki aðeins að lögum um heilbrigðisþjónustu því ef (Forseti hringir.) túlkun m.a. hv. þm. Brynjars Níelssonar er rétt virðast fjárlög ekki hafa lengur neitt gildi (Forseti hringir.) heldur geta menn bara skammtað sér pening úr ríkissjóði eins og þeim hentar.