gagnsæi fjármálaáætlunar.
Virðulegi forseti. Fjármálaráðherra segir á samfélagsmiðlum að taka skuli tillit til ábendinga fjármálaráðs við gerð næstu áætlunar sem sett verður fram snemma árs 2018. Fjármálaráð hefur fjallað um fjármálaáætlun og segir að grunngjaldamiðuð stefna sé ekki trygging fyrir grunngjaldamiðaðri áætlun. Stjórnvöldum nægi ekki að útfæra fjármálastefnuna í fjármálaáætlun og eftirláta síðan fjármálaráðherra að bera kennsl á hvernig áætlanir og athafnir rími við grunngildi. Slíkt gangi gegn grunngildinu um gagnsæi.
Það var sagt: Það var ekki vel rökstutt hvernig væri farið eftir grunngildum í fjármálastefnunni.
Vandamálið er hins vegar dýpra. Það er ekkert í fjármálaáætluninni sem segir okkur af hverju rétt rúmir 30 milljarðar í framhaldsskólastiginu fjármagni þau verkefni sem þar á að sinna. Það eru engar upplýsingar um hvað það þýddi fyrir verkefni framhaldsskólastigsins ef upphæðin yrði 31 milljarður eða 29 milljarðar.
Gagnrýni fjármálaráðs um skort á gagnsæi er alvarlegri en hún lítur út fyrir að vera við fyrstu sýn. Gagnsæi er gríðarlega mikilvægt fyrir eftirlit Alþingis með framkvæmd fjárlaga. Ef þingmenn hafa ekki upplýsingar um hvað meira eða minna fjármagn hefur á verkefnastöðu málefnasviðanna er samþykkt þingsins á þessari þingsályktunartillögu gerð í blindni.
Þegar hæstv. fjármálaráðherra segir að ekki verði tekið tillit til ábendinga fjármálaráðs fyrr en í næstu fjármálaáætlun er fjármálaráðherra að segja að þingið eigi að giska á hvað tölurnar í áætluninni þýði.
Spurningin er því: Hvað ætlar hæstv. fjármálaráðherra að gera til að tryggja að rökstuðningur fyrir þeirri fjármögnun sem hvert málefnasvið fær komi fram sem þingskjal sem Alþingi samþykkir eða hafnar? Hvernig ætlar hæstv. ráðherra að tryggja gagnsæi þannig að Alþingi geti sinnt eftirlitshlutverki sínu?