húsnæðismál.
Frú forseti. Ástandið á húsnæðismarkaði á Íslandi, ekki síst með hliðsjón af stöðu ungs fólks og tekjulægri einstaklinga, hefur um nokkurt skeið verið mjög slæmt. Ljóst er að framboð húsnæðis annar engan veginn eftirspurn. Ástandið kemur hart niður á bæði kaupendum og leigjendum og hefur stuðlað að fáránlega hraðri hækkun fasteignaverðs undanfarin misseri. Það verður einfaldlega ekki unað öllu lengur við þessa stöðu og ég fagna því að fá hér tækifæri til að spyrja hæstv. ráðherra húsnæðismála um aðgerðir. Sérfræðingar sem vel þekkja til og hafa áralanga, jafnvel áratugalanga, reynslu af því að starfa á íslenskum húsnæðismarkaði segja núverandi ástand verra en það hefur verið svo lengi sem elstu menn muna. Til að leysa úr þeim hnút sem málið er komið í eftir langvarandi andvaraleysi þurfi fleiri byggingarhæfar lóðir, fleiri litlar, tveggja til þriggja herbergja, íbúðir og hraðari byggingarframkvæmdir, samráð og samstarf á milli sveitarfélaga og almennt yfirlit yfir stöðu mála og framtíðarþróun.
Það verður einfaldlega ekki hjá því komist að viðurkenna að neyðarástand ríkir í þessum málum á höfuðborgarsvæðinu og er hæstv. ráðherra húsnæðismála einn þeirra sem svo hefur komist að orði um stöðuna. Mig langar því m.a. til að spyrja: Hvað er hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórn að gera núna til að taka á þessu neyðarástandi?
Kostnaður fólks við húsnæði, ýmist húsnæðiskaup eða leigu, er alla jafna fyrirferðarmesti liðurinn í heimilisbókhaldinu. Því eru mikil og bein tengsl á milli stöðu mála á húsnæðismarkaði og fjárhagslegrar afkomu fólks. Í tiltölulega nýlegri greiningarskýrslu sem Hagstofan vann um stöðu þeirra sem búa við sárafátækt hér á landi kemur fram að nú búa tæplega 4.300 manns við verulegan skort á efnislegum gæðum. Ástæða þess að ég nefni þennan hóp sérstaklega er sú að þegar Hagstofan greinir hóp sárafátækra nánar kemur fram að auk heilsufars almennt er staða fólks á húsnæðismarkaði lykilþáttur sem spáir fyrir um hvort fólk búi við sárafátækt. Í skýrslu Hagstofunnar segir að niðurstöður bendi til að horfa verði til samspils húsnæðisstöðu, heilsufars og heimilisgerðar við stefnumótun sem lýtur að sárafátækt. Það er mikið rétt. En það má líka snúa þessari jöfnu við og segja að horfa verði til þessa samspils við stefnumótun sem lúti að því að tryggja eins og kostur er framboð og fjölbreytileika húsnæðis sem í boði er.
Ég spyr því jafnframt hæstv. ráðherra: Hvernig er að mati hæstv. ráðherra hægt að styðja betur við tekjulægstu hópana, hvort heldur er til kaupa eða leigu á húsnæði?
Eins og fram hefur komið hefur undanfarið verið að störfum sérstakur aðgerðahópur á vegum fjögurra ráðherra til að koma með aðgerðir til úrbóta á húsnæðismarkaði, aðgerðir sem eiga að vinna bug á því neyðarástandi sem ríkt hefur. Þetta er mjög mikilvægt. Ég bind, eins og fleiri, vonir við að þessar aðgerðir höggvi á hnútinn. Gallinn við svona aðgerðahópa er að þeim er alla jafna ekki komið á laggirnar fyrr en viðkomandi ástand hefur ríkt í töluverðan tíma og það með tilheyrandi kostnaði og erfiðleikum fyrir fjöldann allan af fólki.
Það er til mikils að vinna fyrir alla að á sama tíma og brugðist verði við þeim vanda sem nú ríkir verði allt kapp lagt á að koma í veg fyrir að sama eða sambærileg staða komi upp aftur í fyrirsjáanlegri framtíð. Hér er „fyrirsjáanlegt“ lykilorðið. Sá vandi sem er við að etja á húsnæðismarkaði hefur að langmestu leyti verið algjörlega fyrirsjáanlegur og það í lengri tíma. Þetta snýst ekki um kjarneðlisfræði heldur er hér þörf á almennri skynsemi sem almenningur á kröfu á að ráðafólk þjóðarinnar tileinki sér þegar verið er að sýsla með málaflokk sem varðar almannahagsmuni jafn ríkulega og raun ber hér vitni.
Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra húsnæðismála að lokum: Hvernig má tryggja betra jafnvægi á fasteignamarkaði til lengri tíma litið til að koma í veg fyrir að svona ástand myndist aftur?