húsnæðismál.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni þessa umræðu sem er afar mikilvæg í þeirri stöðu sem við erum með á húsnæðismarkaði í dag. Það að hafa þak yfir höfuðið er eitt það mikilvægasta fyrir manninn, ein af grunnþörfunum sem ríki og sveitarfélög verða að mæta með öllum tiltækum ráðum. Sú staða sem er uppi á markaðnum núna var algjörlega fyrirsjáanleg. Ég hef nefnt það á þessum stað áður að lengi hefur verið talað um á byggingarmarkaði, a.m.k. undanfarin 15 ár eða svo, að óvenjustórir árgangar væru að koma inn á fasteignamarkað á þessu tímabili, enda vitum við með allgóðum fyrirvara hvenær von er á stórum árgöngum inn á íbúðamarkað þegar fólk er gegnumgangandi í kringum 25 ára aldurinn að flytja að heiman.
Þessi vandi var því algjörlega fyrirséður. Hann er margþættur og krefst þess að ríki og sveitarfélög taki höndum saman, sér í lagi á höfuðborgarsvæðinu þar sem vandinn er hvað verstur, um það hvernig við getum leyst bæði skammtímavandann, þá miklu skortstöðu sem er á markaðnum, en ekki síður hvernig við getum til lengri tíma litið komið í veg fyrir að staða sem þessi endurtaki sig.
Eins og hv. þingmaður nefndi höfum við á vettvangi ríkisstjórnarinnar sett upp sérstakan aðgerðahóp sem í samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu mun leggja fram heildstæðar tillögur um það hvernig við getum tekið á þessum vanda í bráð og lengd.
Það er helst að nefna, nr. 1, 2 og 3, hvernig við tryggjum aukið framboð húsnæðis inn á markaðinn núna, við erfiðar kringumstæður. Hvernig tryggjum við rétta tegund húsnæðis, þ.e. hagkvæmt, ódýrt húsnæði, fyrst og fremst hugsað til fyrstu kaupa? Hvernig tryggjum við að fólk geti eignast húsnæði? Það hefur verið töluvert mikil áhersla á uppbyggingu leigumarkaðar og félagslegra úrræða, sem eru auðvitað nauðsynleg í heildstæðri nálgun húsnæðismarkaðs, en því miður hefur það setið á hakanum sem snýr að þeirri einföldu stöðu að geta eignast sitt eigið húsnæði. Allar rannsóknir sýna okkur að þegar langtímabúseta er höfð í huga er hagkvæmasti kosturinn að eignast en ekki leigja, greiðslubyrði til lengri tíma litið verður mun minni, eignamyndunin sem í þessu felst, öryggið á efri árum og svo mætti áfram telja.
Þess vegna er núverandi staða mjög varhugaverð. Ég hef töluverðar áhyggjur af því hvernig leigufélög eru farin að ryðja sér rúms á markaðnum, kaupa upp í krafti fjárhagslegs styrks húsnæði til leigu þegar fólk sem raunverulega vill eignast sitt fyrsta húsnæði getur illa keppt við kaupmátt þeirra.
Það þarf að huga að því hvernig við getum einfaldað skipulagsferlið, sérstaklega þá að hraða framkvæmdum í þeirri miklu áherslu á þéttingu sem hefur verið á höfuðborgarsvæðinu. Við þurfum að horfa til þess hvernig við getum fengið byggingarreglugerðir til að styðja betur við minni og ódýrari íbúðir. Við þurfum að horfa til þess hvernig sveitarfélögin verðleggja lóðir, að verðlagning þeirra hvetji til byggingar smærri íbúða og eigna. Við þurfum að horfa til þess hvernig ríkið getur komið inn í þetta með því að auka lóðaframboð á höfuðborgarsvæðinu eins og nýleg sala á Vífilsstaðalandinu sýnir. Við eigum fleiri slík tækifæri á höfuðborgarsvæðinu. Við þurfum að horfa til þess hvernig sveitarfélögin vinna saman að skipulagningu á framboði lóða og íbúðarhúsnæðis fram á veginn. Þörfin er fyrirsjáanleg í öllum megindráttum. Sveitarfélögin verða sameiginlega, eins og á samvöxnum byggðasvæðum, að gera áætlun um hvernig eigi að mæta væntri eftirspurn næstu fjögur, fimm ár fram í tímann, eftirspurn sem er algjörlega fyrirséð.
Við þurfum að horfa til þess hvernig ferðaþjónustan hefur áhrif. Við sjáum töluverð merki um stóraukna ásókn í atvinnurekstur í íbúabyggð þar sem ferðaþjónustan er þá komin í samkeppni við íbúa landsins um þak yfir höfuðið. Við þurfum að tryggja það með sama hætti og við skipuleggjum í kringum rekstur veitingahúsa og gististaða með formlegt leyfi að þessi óformlega gistiþjónusta sem hefur farið mjög vaxandi í gegnum Airbnb og slíkar síður sé undir skipulagi líkt og annað.
Við horfum jafnframt til þess hvernig við getum samræmt húsnæðisstuðning, bæði húsnæðis- og vaxtabætur til tekjulægstu hópanna, og hvernig sameiginlegar húsnæðisáætlanir sveitarfélaga á samvöxnum svæðum (Forseti hringir.) geta betur stuðlað að langtímajafnvægi á markaðnum.