146. löggjafarþing — 58. fundur,  24. apr. 2017.

húsnæðismál.

[17:18]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson og ráðherra fyrir svörin. Það er áhugavert að hlusta á hv. þingmenn tala um að þessi vandi á húsnæðismarkaðnum hafi verið fyrirsjáanlegur. Þá verður maður einfaldlega að spyrja sig hver ástæðan sé fyrir því að menn gleymdu að nefna húsnæðismál, íbúðarhúsnæði, í stjórnarsáttmálanum og að ráðherrann ákvað að sleppa því að kalla sig sérstaklega húsnæðismálaráðherra.

Ég vil hins vegar leggja áherslu á það hér hvernig við aukum framboðið. Við stjórnmálamenn erum mjög oft góð í því að efla eftirspurn en við erum ekki jafngóð í því að tryggja framboð á íbúðarhúsnæði. Það hefur verið á þingmálaskrá ráðherrans að endurflytja mál sem ég var með hér í þinginu fyrir síðustu kosningar sem snýr að húsnæðisáætlanagerð. Það er ánægjulegt að sjá að Íbúðalánasjóður hefur verið að funda með sveitarfélögum um land allt og aðstoðað þau við gerð húsnæðisáætlana, en það væri hins vegar mikilvægt að fá lagastoð fyrir þeirri vinnu og skerpa á henni í samræmi við það frumvarp sem ég hafði lagt fram hér.

Ég vil líka nefna nokkrar hugmyndir, á þeim stutta tíma sem ég hef, sem koma frá Bretlandi. Ég tel mjög mikilvægt að gerð sé skýr krafa til sveitarfélaga og jafnvel að fjárveitingar til þeirra séu skilyrtar í gegnum jöfnunarsjóð, að þau skilgreini nægt framboð af byggingarlandi til að tryggja framboð á íbúðarhúsnæði næstu fimm árin með ákveðnum „böffer“ í samræmi við það sem þekkist í Bretlandi. Við þurfum enn á ný að skoða hvað við getum gert varðandi reglugerðir. Hér hefur verið talað um hagstæðara skattumhverfi. Ég vil benda á þá sem eru að reisa íbúðarhúsnæði, á þá sem ætla að byggja sjálfir og huga að því hvernig við getum aukið eftirlitið með skammtímaleigu til ferðamanna og tryggt að það verði ekki einungis í fimm ár sem aukin stofnframlög verði til byggingar leiguheimila, heldur að við tryggjum um ókomna (Forseti hringir.) tíð byggingu þeirra. Ég vil líka að menn skoði svokallaðan „Home Building Fund“ í Bretlandi og kröfu um að sveitarfélögin birti upplýsingar um þá sem sækjast eftir lóðum og vilja byggja í þeirra sveitarfélögum þannig að við sjáum hver raunveruleg eftirspurn er eftir íbúðarhúsnæði á hverjum stað fyrir sig.