heimavist fyrir framhaldsskólanema.
Forseti. Hv. þingmaður spyr um stefnu ráðherra varðandi uppbyggingu heimavista fyrir framhaldsskólanema á höfuðborgarsvæðinu. Stutta svarið er að sá sem hér stendur hallast að því að róa að því öllum árum að framhaldsskólanemar geti stundað framhaldsskólanám sem lengst í sinni heimabyggð og sem næst henni hverju sinni. Ég hef ekki haft uppi nein áform um að byggja upp heimavistir á höfuðborgarsvæðinu fyrir framhaldsskólanema. Lagaákvæðin í þeim efnum eru á þann veg að ákvörðun um uppbyggingu heimavista er sameiginleg ákvörðun þess sveitarfélags þar sem framhaldsskóli er starfræktur og ráðuneytis mennta- og menningarmála. Þetta á sér stoð í lögum um framhaldsskóla frá árinu 2008. Stofnkostnaður milli aðila skiptist þannig að heimasveitarfélagið ber 40% kostnaðar og ríkissjóður 60%.
Ég fékk þær upplýsingar í ráðuneytinu að það hefur ekki leitað eftir afstöðu sveitarfélaganna til uppbyggingar heimavista fyrir framhaldsskólanema á starfssvæði þeirra. Ef slík ósk kæmi fram frá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu myndum við einfaldlega fara yfir slíka ósk í ráðuneytinu.
Ég ítreka að áform mín hafa ekki verið í þá veru að reisa heimavistir fyrir framhaldsskólanema á höfuðborgarsvæðinu.