heimavist fyrir framhaldsskólanema.
Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir svörin. Mín afstaða er sú að það að huga að húsnæðismálum þeirra sem vilja sækja eða telja sig jafnvel þurfa að sækja nám í framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu ætti svo sannarlega ekki að útiloka að ráðherrann geti áfram unnið að þeirri stefnu, sem ég hef verið sammála, að nemendur geti klárað framhaldsskólapróf í sinni heimabyggð. Það er hins vegar einfaldlega staðreynd að töluvert af námi á framhaldsskólastigi er ekki í boði nema á höfuðborgarsvæðinu. Ef nemandi hefur í hyggju að velja það nám á hann þar af leiðandi ekki val um neitt annað en að flytja á höfuðborgarsvæðið. Ráðherrann nefndi og við þekkjum að staða fjölmargra sveitarfélaga hefur ekki verið góð og menn hafa þá einfaldlega ekki getað gert allt sem þeir hefðu viljað gera þegar kæmi að uppbyggingu í húsnæðismálum, eins og kom fram í umræðunni á undan, en núna erum við með nýtt kerfi, hið svokallaða almenna íbúðakerfi, þar sem m.a. er hugað að byggingu námsmannaíbúða. Þar er Byggingafélag námsmanna sem hefur verið að byggja húsnæði fyrir m.a. verk- og iðnnema sem gæti hugsanlega tekið að sér þetta verkefni. Þarna er fjárveiting. Í ár eru til 3 milljarðar sem ætlunin er að úthluta sem stofnframlögum ríkisins. Ef allir framhaldsskólarnir tækju sig saman væri þarna tækifæri til að huga að þessum hópi og tryggja að við byggjum þá betur að börnunum okkar sem þurfa að flytja af landsbyggðinni (Forseti hringir.) til að sækja nám á höfuðborgarsvæðinu.