146. löggjafarþing — 58. fundur,  24. apr. 2017.

heimavist fyrir framhaldsskólanema.

275. mál
[17:51]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Forseti. Það er alveg rétt að það er örugglega töluvert um að nemendur þurfi að sækja á ýmsum sviðum nám til sérhæfðari námsbrauta en hægt er að bjóða upp á vítt um land. Ég þekki ekki greiningu á þessu en dreg ekki í efa að eitthvað sé til í því.

Ég ítreka þá afstöðu mína að ég hef ekki verið á þeim stað að fara að ýta undir eða hefja byggingu á heimavist á höfuðborgarsvæðinu og kannast ekki við beiðni frá sveitarfélögunum heldur. Gildandi lagaákvæði eru eins og ég nefndi áðan. Ef einhverjir aðrir kostir eru í stöðunni, eins og hv. fyrirspyrjandi nefnir, er sjálfsagt að fara yfir það. Ég geri þá ráð fyrir að sveitarfélögin eða einstakir skólar, eða skólasamfélagið á höfuðborgarsvæðinu eftir atvikum, kalli eftir því og skoði þá möguleika sem þarna kunna að leynast.