146. löggjafarþing — 58. fundur,  24. apr. 2017.

sálfræðiþjónusta í framhaldsskólum.

276. mál
[17:53]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég spyr hæstv. menntamálaráðherra um það hver sé stefna ráðherrans í innleiðingu á sálfræðiþjónustu í framhaldsskólum. Nú þekki ég til þess að þegar ráðherrann gegndi embætti heilbrigðisráðherra var eitt af áherslumálum hans að byggja upp sálfræðiþjónustu á heilsugæslum og hefur verið tryggt fjármagn í þá uppbyggingu. Hins vegar er fjallað um aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu eða sálfræðiþjónustu í framhaldsskólum sérstaklega í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Þar er hugað sérstaklega að framhaldsskólanemendum. Jafnframt er talað um að stuðningur verði aukinn við börn foreldra með geðvanda og sálfræðiþjónusta felld undir tryggingakerfið í áföngum.

Rannsóknir hafa sýnt að kvíði barna og ungmenna hefur aukist mjög mikið, ekki hvað síst hjá stúlkum. Bent hefur verið á að hluti af þessum kvíða geti verið tengdur náminu, það getur verið prófkvíði, áhyggjur af inntöku í menntaskóla og vegna álagsins sem er orðið m.a. við styttingu náms.

Ég vildi gjarnan fá að heyra hvernig ráðherrann sér fyrir sér að hægt verði að standa við þessi ákvæði í stjórnarsáttmálanum. Það hefur komið fram að mikilvægast er að horfa ekki endilega á stjórnarsáttmálann heldur hvað menn ætla að gera. Það er einfaldlega það sem ég er að gera hér, spyrja ráðherrann hvað hann hyggist gera til að við getum bætt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu í framhaldsskólum fyrir börnin okkar og brugðist þannig vonandi við þeim vanda sem við sjáum að hefur verið að aukast og snýr að ýmsum geðvandamálum ungmenna.