146. löggjafarþing — 58. fundur,  24. apr. 2017.

sálfræðiþjónusta í framhaldsskólum.

276. mál
[18:01]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Eygló Harðardóttur fyrir að hefja enn máls á þessu þarfa efni. Eins og þingheimi er í fersku minni lagði gervallur þingflokkur Samfylkingarinnar samanlagður (Gripið fram í.) fram tillögu til þingsályktunar um sálfræðiþjónustu í framhaldsskólum nú á aðventunni. Við væntum þess að málið fái farsæla framgöngu. Mér heyrist það. Aðstæður í skólum eru mismunandi. Nemendum líður ekki vel. Það er hátt brottfall sem við höfum áhyggjur af. Og að gera bragarbót að þessu leyti með því að afla skólunum sálfræðinga ætti að bæta skólaumhverfið allt. Við vorum fyrr í dag að tala um kennaraflótta. Þetta bætir skólaumhverfið allt, bæði sem vinnustað og verustað fyrir nemendur og kennara.