fjárfestingarstefna lífeyrissjóða.
Virðulegi forseti. Ég held að ekki hafi verið neinn meiningarmunur á milli þeirra sem töluðu hér í sambandi við þessar fyrirspurnir. Öll viljum við að okkar sameiginlegu fjármunir séu nýttir í holl og góð fyrirtæki. Það hefur enginn sérstakan áhuga á því að styðja við mengandi uppbyggingu, að stuðla að vopnaframleiðslu eða barnaþrælkun, svo við nefnum nokkur atriði sem upp hafa komið þegar horft er til fyrirtækja.
Varðandi athugasemd hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar um hvort rétt sé að lífeyrissjóðir eigi í mörgum fyrirtækjum á samkeppnismarkaði held ég að meginatriðið sé ef svo háttar til að lífeyrissjóðurinn geti ekki tekið þátt í stjórnarstörfum neins af þessum fyrirtækjum. Það hefur hins vegar þrengt mjög að lífeyrissjóðunum og fjárfestingum þeirra á innlendum markaði þannig að þeim kann að hafa verið vorkunn fram að þessu. En nú er búið að losa um öll höft þannig að það á ekki að þurfa að gerast í framtíðinni.
Ég tek líka undir það sem hv. málshefjandi Andrés Ingi Jónsson segir, að það verði að vera gagnsætt í hverju lífeyrissjóðirnir fjárfesta. Þetta eru fjármunir almennings. Þeir eru vörslumenn almannafjár rétt eins og þingmenn og ráðherrar. Þetta eigum við að vita. Ég held að reyndar að við vitum mjög oft hvernig hagar til um það.