146. löggjafarþing — 59. fundur,  25. apr. 2017.

fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.

263. mál
[14:16]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um heimild til handa ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja sem undirritaður var 28. apríl 2016. EFTA-ríkin og Filippseyjar hófu viðræður um gerð fríverslunarsamnings í mars 2015 og lauk þeim í febrúar 2016. Í samningnum er kveðið á um gagnkvæma niðurfellingu og lækkun tolla á iðnaðarvörur, sjávarafurðir og unnar og óunnar landbúnaðarvörur. Tollar munu þannig falla niður af flestöllum sjávarafurðum og iðnaðarvörum sem fluttar eru út frá Íslandi til Filippseyja og hið sama á við um helstu landbúnaðarvörur sem framleiddar eru hér á landi til útflutnings. Samningurinn mun því bæta samkeppnisstöðu íslenskra útflytjenda sem flytja vörur sínar út til Filippseyja.

Aðildin er jafnframt liður í því sameiginlega verkefni EFTA-ríkjanna að bæta markaðsaðgang fyrirtækja þeirra að mörkuðum víðs vegar um heim með gerð fríverslunarsamninga. EFTA-ríkin hafa sameiginlega gert 27 slíka samninga við 38 ríki eða ríkjahópa.

Í þingsályktunartillögunni er gerð grein fyrir helstu efnisþáttum fríverslunarsamningsins. Þar kemur fram að samningur inniheldur m.a. ákvæði um vöruviðskipti, þjónustuviðskipti, fjárfestingar, verndun hugverkaréttar, opinber innkaup, samkeppnismál og viðskipti og sjálfbæra þróun.

Útflutningur á vörum frá Íslandi til Filippseyja hefur verið lítill, þ.e. sem nemur á bilinu 50–100 millj. kr. á ári. Hefur þar fyrst og fremst verið um að ræða útflutning á tækjabúnaði, einkum vogum og búnaði í tengslum við jarðboranir, auk lítils háttar útflutnings á heilfrystum makríl. Þá hafa íslenskir aðilar í talsverðum mæli selt þjónustu sína og þekkingu vegna rannsókna og nýtingar á jarðhita í Filippseyjum. Innflutningur frá Filippseyjum hefur á undanförnum árum numið um 300 millj. kr. á ári. Með gagnkvæmri niðurfellingu og lækkun tolla skapar samningurinn forsendur fyrir auknum viðskiptum milli landanna.

Ég legg til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögunni vísað til síðari umr. og hv. utanríkismálanefndar.