fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.
Frú forseti. Það er að sjálfsögðu ekkert nema gott um það að segja að það bætist enn í sarpinn af fríverslunarsamningum sem EFTA-ríkin hafa verið dugleg við að gera og almennt yfirleitt ekkert nema gott um það að segja. En það er þó hefðbundið við slíkar aðstæður og hefur áður komið upp við sambærilegar aðstæður að spyrja um samskipti viðræðuaðila eða samningsaðila á sviði mannréttindamála. Þegar slíkir samningar hafa verið gerðir hefur verið ætlast til þess að menn héldu þeim til haga í samskiptum af þessu tagi og gjarnan þá a.m.k. lagðar niður bókanir eða gengið með einhverjum hætti frá því og það gert sýnilegt að þau mál hafi verið tekin upp. Ég held að ég þurfi ekkert að fara nánar út í það til hvers ég er að vísa um þessar mundir eins og ástatt er í þeim efnum á Filippseyjum.
Ég spyr hæstv. utanríkisráðherra hvernig málum var fyrir komið að þessu sinni. Tóku EFTA-ríkin upp fyrir sitt leyti stöðu mannréttindamála og var það afgreitt með einhverjum hætti í viðræðunum?