fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.
Herra forseti. Enn þakka ég fyrir svarið. Varðandi Kína, við skulum afgreiða það rétt og snyrtilega. Ég var náttúrlega ekki aðili að því og var ekki einu sinni í þeim ágæta flokki sem þar kom að málum. Sennilega hefði ég greitt atkvæði á móti því eða setið hjá. Ég segi bara sennilega, ég ætla ekki að fara nánar út í það í bili vegna þess að hef þann samning ekki fyrir framan mig.
En auðvitað drögum við mismunandi línur á mismunandi stöðum. Það er mat. Því miður er það þannig. Við erum í samskiptum við ríki svo tugum skiptir sem eru með brogaða, svo ég sletti nú dönsku, fortíð eða brogaða nútíð eða ástand sem ekki er ásættanlegt. Þess vegna er þetta svo.
Ég get alveg eins spurt hv. þingmann: Hefði hún viljað ganga gegn viðskiptaþvingunum við Suður-Afríku? Nei, sennilega hefði hún ekki gert það. Það voru mörg ríki með og það var allt annað mál. Nú eru það Filippseyjar, sem skipta okkur kannski ekki miklu máli. En einhvern veginn er framferði stjórnvalda þar með þeim hætti, og ég get nefnt einhver önnur dæmi, herforingjastjórnina í Argentínu á sínum tíma sem kastaði fólki úr þyrlum yfir opnu hafi. Þetta er því miður þannig að í alþjóðasamskiptum verðum við að meta hvert tilvik fyrir sig. Það getur vel verið að við þurfum að þola mannréttindabrot í einhverju landi. Við getum bara nefnt Rússland áður en viðskiptaþvinganirnar komu til.
Ef ég reyni að horfa á þetta tiltekna ríki og þær tilteknu aðstæður sem þar eru kemst ég að þessari niðurstöðu, öfugt við hv. þingmann. Þar við situr og hana nú.