146. löggjafarþing — 59. fundur,  25. apr. 2017.

sjúklingatrygging.

433. mál
[20:25]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Óttarr Proppé) (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið og spurninguna. Því er til að svara að ég hef ekki nákvæmar upplýsingar um hver ástæðan er eða hvatinn fyrir því að illa hefur gengið að fá gögn. Hugsunin er sú að með því að setja það sérstaklega í lögin að málshraði sé aukinn, og að ætlast sé til að Sjúkratryggingar geti lokið málinu innan átta vikna, sé það í það minnsta talsverður hvati til að gögn fáist afhent, þó að refsing sé ekki skilgreind eða afleiðingar þess að standast ekki umræddan frest. Gert er ráð fyrir að þetta muni bæta gagnaöflun og auka þar af leiðandi málshraða.

Það er verið að fara væga leið til að gera þetta. Það er skilgreint að gefinn sé ákveðinn tímafrestur. Það er líka gert til að tryggja rétt sjúklingsins til þess að afstaða sé tekin innan eðlilegra tímamarka. Það er réttur sjúklingsins sem ræður fyrst og fremst. Eigum við að segja að stofnununum og þeim sem þurfa að afhenda gögn sé kannski gert, eða því frekar beint til þeirra, að virða þennan rétt sjúklingsins. Sú er hugsunin. Hins vegar var ekki gert ráð fyrir að sérstök viðurlög væru við því að standast ekki þessa fresti heldur er þetta fyrst og fremst hugsað sem tæki til hvatningar í gagnaöflun.