146. löggjafarþing — 59. fundur,  25. apr. 2017.

jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla.

437. mál
[22:09]
Horfa

félags- og jafnréttismálaráðherra (Þorsteinn Víglundsson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég get ekki annað en þakkað hv. þingmanni andsvarið og alveg sérstaklega að þurfa ekki að taka víkingaklappið til að fagna því, með vandræðalegri stundum sem ég hef átt. [Hlátur í þingsal.] Að því slepptu þá er það alveg rétt, sem hv. þingmaður bendir á, að við höfum verið með lög hér frá 1961, um bann við kynbundnum launamun, en það hefur ekki dugað til. Það sem þessi staðall felur í sér er einmitt aðferðafræðin til að meta jafnverðmæt störf sem gerir okkur kleift að komast lengra í þessari umræðu en einfaldlega að binda hana við sömu störf. Auðvitað eru störf innan fyrirtækja og stofnana mjög ólík, þess vegna er afar mikilvægt að hafa þá aðferðafræði sem staðallinn býður upp á.

Hvað Stjórnarráðið varðar, að þar sé gengið á undan með góðu fordæmi, þá er það svo að þar er einmitt unnið að jafnlaunavottun og flest ráðuneytin eru vel á veg komin. Þó svo það sé alveg rétt að þegar horft er til hverrar stjórnunareiningar þá útrýmir þetta aðeins kynbundnum launamun innan hennar getum við eftir sem áður staðið uppi með mismunandi launastrúktúr milli ráðuneyta sem vert er að skoða hversu mikill er þegar við verðum komin áleiðis í þessari vinnu.