jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla.
Virðulegi forseti. Ég ætla að taka undir hamingjuóskir til ráðherra með framlagningu þessa frumvarps. Það er ánægjulegt að heyra hversu margir þingmenn hafa óskað ráðherranum til hamingju og virðist vera nokkuð almenn sátt í þessum sal um þetta ágæta frumvarp.
Eins og fram kom í einhverri ræðu og kemur skýrt fram í greinargerðinni með frumvarpinu voru fyrst sett lög um launajöfnuð kvenna og karla árið 1961. Þá taldi fólk að það yrði svolítið erfitt að breyta viðhorfum fólks til stöðu kynjanna, en það yrði lítið mál að breyta þessu með launajafnréttið. Sú hefur víst alls ekki orðið raunin, enda sjáum við ítrekað í rannsóknum að niðurstaðan er konum ekki í hag þegar kemur að launamun á vinnumarkaði. Í skýrslu félags- og húsnæðismálaráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála á árunum 2013–2015 kemur fram að launamunurinn sé á bilinu 5,6% til 13,7%. Vissulega er tekist á um þessar tölur og hvað sé nákvæmlega rétt í þeim efnum, en ég held að flestum beri saman um að hér sé til staðar launamisrétti. Það er auðvitað mjög bagalegt að við höfum hér skýr lög sem taka á því og segja að ekki megi mismuna fólki á vinnumarkaði út frá kyni. Við þurfum þá að fara í það að gera enn önnur lög til að ítreka það. Í ljósi þess að okkur hefur ekki tekist betur upp en þetta frá árinu 1961 styð ég það heils hugar að við förum í slíkar aðgerðir.
Hv. þingmaður sem talaði á undan mér ræddi um stöðu okkar í jafnréttismálum almennt og var farið yfir það í andsvörum. Ég held að það sé alveg ljóst, hvort sem við vísum í fræga ráðstefnu í New York eða miklu minni ráðstefnu sem ég var á í Færeyjum á vegum Vestnorræna ráðsins þar sem verið var að ræða jafnréttismál, að almennt er horft til Íslands þegar kemur að þessum málaflokki, enda erum við þegar litið er til Alþjóðaefnahagsráðsins í 1. sæti varðandi jafnrétti kynjanna og höfum verið þar átta ár í röð. Það er auðvitað frábært og því ber að fagna. Við eigum auðvitað að vera stolt af því og kannski getum við miðlað einhverju áfram í alþjóðasamstarfi hvað það varðar.
Í greinargerðinni er vísað í breytingar á lögum nr. 13/2010, um hlutafélög og lög um einkahlutafélög, þegar farið var út í þær breytingar að kveða á um kynjahlutföll í stjórnum hlutafélaga. Ég var ekki komin inn á þing á þeim tíma, en ég minnist þess að mikil umræða var um þær lagabreytingar á sínum tíma og sýndist sitt hverjum. En það virðist hafa skilað árangri.
Þess vegna held ég að það sé gott að við tökum þessa umræðu hér og við fáum málið inn til þinglegrar meðferðar. Ég fagna því mjög að við séum komin á þann stað að leggja þetta frumvarp fram. Ég treysti hv. allsherjar- og menntamálanefnd vel til þess að fara yfir málið, fá inn umsagnir og ná hér fram breiðri samstöðu um frumvarp sem lýtur að því að auka enn frekar jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
Ég hnaut líka um það í greinargerðinni að þar segir, með leyfi forseta:
„Innleiðing jafnlaunastaðalsins krefst stuðnings og þátttöku æðstu stjórnenda og vinnu innan hvers vinnustaðar. Ljóst þykir því að vinna við ferlið sjálft feli í sér kostnað fyrir fyrirtæki og stofnanir. Sýnir reynsla fyrirtækja og stofnana sem nú þegar hafa undirgengist jafnlaunavottun á grundvelli jafnlaunastaðalsins aftur á móti að vinna við hana sé mest í upphafi.“
Það var náttúrlega ákveðið tilraunaverkefni og hafa stofnanir og fyrirtæki farið í gegnum það ferli. Það er kannski nákvæmlega það sem gerist að breytingin verður með því að fara í gegnum ferlið, það leiðir áfram breytingarnar þegar stjórnendur þurfa að setja upp jafnréttisgleraugun af því að þeir þurfa að fylgja einhverju ferli. Ég hef trú á því að það gæti verið það sama í þessu efni. Ég fagna því þess vegna mjög að þetta mál sé komið fram og ítreka hamingjuóskir mínar til ráðherrans.
Mér finnst líka ánægjulegt að sjá að þrátt fyrir að klukkan sé að slá í miðnætti eru margir þingmenn enn í salnum og virðist vera mikill áhugi á þessu máli. Mikið hefur verið rætt um samvinnu og samstöðu okkar á þingi, þannig að það er ánægjulegt að heyra að þeir þingmenn sem hafa tjáð sig hér lýsa almennt yfir stuðningi við frumvarpið og er gott til þess að vita að við getum afgreitt hér mál í mikilli sátt. Það er ánægjulegt ef það teygir sig út yfir stjórn og stjórnarandstöðu.
Ég held að það séu spennandi tímar fram undan. Ég held að við hljótum nú að leysa þetta með staðalinn sem mjög hefur borið á góma hér í kvöld. Ég tel að hæstv. ráðherra og allsherjar- og menntamálanefnd hljóti að finna einhverja leið út úr því þannig að ekki verði vandamál að lesa úr staðlinum eða birta hann á vef þingsins ef svo ber undir. En ég leyfi mér að efast um að umræðan hér í kvöld hefði orðið eitthvað sérstaklega skemmtileg ef við hefðum verið með staðalinn hjá okkur, af því að það var nú ekki hápunktur í ræðum kvöldsins þegar lesið var upp úr þessum ágæta staðli. En umræðan hefur verið ágæt.