ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 92/2016 um breytingu á XI. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 92/2016 um breytingu á XI. viðauka, er varðar rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið. Nefndin fjallaði um málið á fundi sínum og fékk á sinn fund fulltrúa utanríkisráðuneytis, innanríkisráðuneytis og Póst- og fjarskiptastofnunar.
Reglugerðirnar tvær sem ákvörðuninni er ætlað að taka upp í samninginn fjalla um nethlutleysi og reikigjöld. Hugmyndin um nethlutleysi hefur birst í þeirri meginreglu að aðildarríki stuðli að því að notendur geti sótt efni og þjónustu á netinu að eigin vali og að fjarskiptafyrirtæki skuli upplýsa viðskiptavini sína ef gerðar eru ráðstafanir til netmismununar.
Sú breyting sem hér er lögð til felur í sér að venjubundin umferðarstýring verður ekki sjálfgefin lengur, svo sem hvað varðar takmarkanir á gagnaflutningshraða og gagnamagni. Þá verður einungis heimilt að beita umferðarstýringu í hófi og í takmarkaðan tíma.
Reikigjöld og sá kostnaður sem í þeim felst könnumst við flest við sem notað höfum farsíma á ferðalögum erlendis. Breytingin sem hér er lögð til felur í sér afnám sérstakra reikigjalda í júní á þessu ári. Óheimilt verður því að leggja viðbótargjald ofan á símtöl símnotenda á ferðum þeirra innan EES-svæðisins.
Gerðunum er ætlað að bæta hag neytenda, stuðla að aukinni vernd þeirra og minnka kostnað með afnámi reikigjalda. Því er um mikilvægt neytendamál að ræða.
Það er samhljómur í hv. utanríkismálanefnd um að leggja til við Alþingi að tillagan verði samþykkt óbreytt.