sveitarstjórnarlög.
Virðulegi forseti. Nú er það svo að þriggja manna þingflokkur þar sem menn sinna störfum í tveimur nefndum sinnir þá sex nefndum í heild. Það eru fleiri nefndir en það og flokkurinn getur þar af leiðandi ekki sinnt öllum. Þess vegna, þegar það koma upp áhugaverð eða nauðsynleg mál sem viðkomandi flokkur telur sig nauðsynlega þurfa að framfylgja og þau er ekki í þeim nefndum sem hann á sæti í, þurfa þingmennirnir að hoppa á milli og vera gestir og fleira skemmtilegt til að geta tekið þátt. Það eina sem mér gengur til hér er að passa að allir fulltrúar flokka geti komið að öllum málum á öllum stigum málsins. Vandamálið er að það eru ekki opnir nefndarfundir, við vitum ekki hvað gestir sögðu á fundum sem við getum ekki mætt á, eftir á, því að fundurinn var ekki tekinn upp. Þar af leiðandi er mjög erfitt að taka þátt í umræðu um málið í þingsal þar sem allir geta tekið þátt. Ef maður þekkir ekki sögu málsins og getur ekki spurt gestina nánar út í það eða tekið þátt í því að ákveða hvaða gesti á að taka inn missir maður af stórum parti lýðræðisins sem fram fer á Alþingi.
Nú er það svo að það er 5% þröskuldur sem kemur í veg fyrir að smáir flokkar komist inn á þing, þótt deilingarfjöldi miðað við þingsæti ætti að vera rétt um 1,68% til þess að fá eitt þingsæti. Talningaraðferðin okkar er þannig að þeir fáu flokkar, þegar þeir fá ekki þingsæti, detta yfirleitt yfir í þingsæti þeirra flokka sem eru með mörg atkvæði. Þannig er ákveðinn lýðræðishalli í gangi. Við segjum að það sé erfitt að taka þátt fyrir litla flokka en við gerum þeim það líka erfitt. Við gætum hins vegar leyst vandamálið. Í staðinn fyrir að hafa 5% þröskuld sem kemur í veg fyrir að þeir geti tekið þátt mætti leysa vandamálið innan húss. Reykjavíkurborg er t.d. með ágætislausn á því, bara að leyfa varaþingmönnum að taka þátt í nefndarvinnunni.