146. löggjafarþing — 60. fundur,  26. apr. 2017.

jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla.

437. mál
[18:03]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um jafnlaunavottun. Ég vil byrja á því að segja að ég er jákvæð gagnvart þessu máli. Ég tel að öll skref í átt til þess að afnema kynbundinn launamun séu góð og þetta sé jákvæð hugsun og að frumvarpið beri það með sér að vilji er til þess að reyna að vinna gegn kynbundnum launamun, sem ekki veitir af. Konur hafa í áraraðir og eiginlega frá örófi alda verið lægra settar á vinnumarkaði og ekki viðurkenndar. Ég vil rifja það upp, sögunnar vegna, að ef við horfum til síðustu aldar þá urðu konur fyrst fjárráða í hjónabandi um aldamótin 1900. Þær hafa vissulega mætt mörgum hindrunum á vinnumarkaði alla tíð síðan. Þó að jafnréttislögin séu frá 1961 hafa þau ekki náð að taka á öllu því sem við hefðum viljað til þess að gera konur og karla jafnsett varðandi laun og möguleika til að öðlast starfsframa. Lögin hafa ekki dugað til en vissulega hafa þau verið mjög öflugt tæki. Við þurfum að fjölga verkfærum til að styrkja konur sem best á vinnumarkaði þannig að sem mest sé uppi á borðum hvernig launamálum er háttað, gegnsæi í launamálum, vil ég meina.

Förum aftur til ársins 1907, það er kannski ekki mjög stutt síðan, en þá fóru konur fyrst í verkfall, fiskverkakonur í Hafnarfirði. Þá voru konur með 15 aura á tímann, karlar 50–60 aura á tímann. Enn þann dag í dag er talið, og það hefur verið sýnt fram á það með rannsóknum, að konur séu með um 10% lægri laun en karlar. Það er auðvitað ekki ásættanlegt ef konur hafa sömu menntun og gegna jafn ábyrgðarmiklu starfi og jafn margar vinnustundir eru á bak við. Það er því enn þá mikið verk að vinna. Ef þetta frumvarp verður varða á þeirri leið og við nálgumst það markmið að afnema kynbundinn launamun er það mjög gott. Ég held að þingmenn allir séu tilbúnir til að vinna með frumvarpið og e.t.v. verða gerðar einhverjar breytingar til að við náum frekar markmiði þess í meðförum þingsins.

Af því að við erum að tala um konur heilt yfir vil ég segja að þótt það sé komið árið 2017 gengur enn erfiðlega fyrir konur að ná sömu stöðu innan fyrirtækja og karlar og fá sömu laun. Ég var að koma af ársfundi Landsvirkjunar og þar var gerð grein fyrir því að í fyrsta skipti hjá Landsvirkjun stjórnaði kona stórverkefni við stækkun á Búrfellsvirkjun, hún var yfirverkstjóri með því verkefni. Það var í fyrsta skipti í sögu fyrirtækisins sem kona stjórnaði slíku verkefni. Ég ætla rétt að vona að sú ágæta kona sé metin til jafns í launum á við karl sem hefði gegnt sambærilegu starfi. Svona er þetta. Þó að við teljum okkur vera komin langt og aðrar þjóðir horfa til okkar sem fyrirmyndar á þessu sviði að mörgu leyti þá er enn verk að vinna. Við sættum okkur ekki við það að veita neinn afslátt af þessu, að það sé bara allt í lagi ef við erum að nálgast markmiðið og erum með 90% af launum karla í sambærilegri vinnu.

Svo er það líka spurningin hvernig við metum störf. Hvað eru kvennastörf og hvað eru karlastörf og hvaða verðmiða setjum við almennt á störf í samfélaginu? Þar eigum við líka langt í land með að ná þeim árangri að svokölluð hefðbundin kvennastörf verði metin að verðleikum. Það skýrir líka það að karlar sækja ekki í þau störf, eins og ætti að vera eðlilegt, vegna þess að þau eru ekki jafn verðmæt í aurum og krónum talið þótt þau séu algjörlega jafn verðmæt og önnur störf sem felast í því að sýsla með fjármuni og annað því um líkt. Við vitum það að umönnunarstörf, kennsla og þjónustustörf ýmis eru mjög vanmetin og oftar en ekki sitja konur uppi með að sinna þeim störfum á of lágum launum. Við eigum langt í land, eða kannski ekki langt, en það er brekka eftir sem er nokkuð brött, með að ná jafnræði kynjanna á mörgum sviðum.

Það kemur fram í frumvarpinu að Jafnréttisstofa eigi að halda utan um þetta, að sjá til þess að fyrirtækin fái jafnlaunavottun. Ég tel það besta mál. Það má alveg horfa til þess hvort skatturinn geti sinnt því hlutverki með meiri upplýsingum, en ég held að þetta falli ágætlega að því að efla Jafnréttisstofu. Ég held að sú stofnun eigi alveg að geta sinnt því hlutverki en auðvitað þarf hún til þess bæði fjármuni og mannafla. Það verður að gera ráð fyrir því að hún fái fjármuni til samræmis við þá ábyrgð sem henni er falin og geti kallað eftir upplýsingum eftir þörfum hjá skattinum og þeim aðilum sem þarna falla undir.

Varðandi staðalinn sem þessi úttekt byggist á hjá fyrirtækjunum þá verður hann að vera viðurkenndur af aðilum vinnumarkaðarins. Það verður að yfirfara staðalinn reglulega, uppfæra hann og skoða og taka á öllum þeim þáttum sem þarf til að sýna fram á að fyrirtæki mismuni ekki starfsfólki eftir kyni. Ef eftirlitsaðilar gagnvart fyrirtækjunum eiga að vera aðilar vinnumarkaðarins lít ég þannig á að þá verði þeir fulltrúar launþega að hafa aðgengi að staðlinum og geta beitt sér fyrir því að hann sé þannig úr garði gerður að hann nái til þess sem hann þarf. Aðilar vinnumarkaðarins þurfa líka að hafa öll tæki og tól til að sinna eftirlitshlutverkinu. Þetta er hugsað til þriggja ára í senn og ég tel mjög mikilvægt að hægt sé að fara inn í fyrirtæki til að tékka stöðuna og vera kannski með óvænta skyndikönnun vítt og breitt meðal fyrirtækja á því hvort menn fara í raun eftir þeirri jafnlaunavottun sem þeir eru búnir að fá úttekt á og vottun fyrir og geta þannig auglýst fyrirtæki sitt með jákvæðum formerkjum. Menn verða að rísa undir merkjum þessi þrjú ár og eiga von á því að gerð sé úttekt hvenær sem er.

Nú veit ég ekki nákvæmlega hvernig það er, hvort hæstv. ráðherra hefur verið í samráði við aðila vinnumarkaðarins í vinnslu málsins, af því að þeim er ætlað að vera í eftirliti. En ég tel mjög mikilvægt að þeir hafi öll þau tæki sem þeir þurfa til að sinna því. Þeir þurfa líka fjármuni til þess, allt kostar þetta pening.

Það er talað hér um dagsektir. Það er spurning hvað þær bíta. Ég er samt þannig þenkjandi að ég tel að við séum að feta okkur inn á þessa braut og eflaust eigi eftir að koma upp ýmislegt sem megi betur fara og þingið geti lagað málið til. Ég er a.m.k. mjög jákvæð gagnvart því að vinna málið. Það er alveg löngu kominn tími til að lögfesta slíkt.

Við þekkjum það að VR, Verslunarmannafélag Reykjavíkur, hefur unnið með jafnlaunavottun í gegnum árin og eflaust fleiri aðilar, þetta er ekki alveg nýtt, sem er jákvætt. Það eru til fyrirmyndir sem eðlilegt er að horfa til.

Það er eitt sem mér finnst þurfa að koma fram og það er um launaleyndina. Ég hef miklar áhyggjur af launaleynd í fyrirtækjum og er hugsi yfir því hvernig hún spilar inn í það að ná því fram að fólk sé með sambærileg laun ef hún viðgengst áfram innan fyrirtækja. Við vitum alveg hver þróunin hefur verið hjá mörgum fyrirtækjum þar sem karlar fá miklu frekar alls konar sporslur, óunna yfirvinnu, bílastyrki og ýmislegt, sem konum í sambærilegum störfum býðst ekki. Verður tekið á því í jafnalaunavottunarkerfinu og í þeim staðli sem á að vinna eftir? Það verður að gera ef þetta á að vera marktækt. Ef launaleynd viðgengst áfram og fyrirtækin leita áfram í farvegi sem staðallinn og úttekt á vottun nær ekki til þá náum við ekki markmiði frumvarpsins.

Ég tel að launaleynd sé eitt af því sem þurfi að uppræta. Kjarasamningar eiga að vera uppi á borðum svo að fólk geti gengið að því vísu hvert verðmæti starfa er og hvað er borgað fyrir þau. Það verður að koma í veg fyrir að greitt sé undir borðið og eftir ýmsum öðrum leiðum og að karlar eigi frekar von á því að fá alls kyns sporslur greiddar sem eru búnar til eftir á, eftir að viðkomandi fær starfið.

Hugarfar landsmanna hefur breyst gífurlega í þessu máli. Karlar eru ekki síðri baráttumenn fyrir afnámi kynbundins launamunar. Það er mjög gott. Það veitir ekki af því að kynin standi saman í þessari baráttu. Dropinn holar steininn. (Gripið fram í.)Þeir eru nokkrir fulltrúar feminískra karlmanna í salnum, sem er mjög gott. Ég vil segja að lokum að þetta er gott mál og skref í rétta átt en ég hef miklar áhyggjur áfram af lágum launum í landinu sem eru fyrst og fremst greidd konum (Forseti hringir.) Það er ekki eðlilegt árið 2017.