146. löggjafarþing — 60. fundur,  26. apr. 2017.

jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla.

437. mál
[18:25]
Horfa

Nichole Leigh Mosty (Bf):

Hæstv. forseti Ég ætla ekki að standa hér og kafa ofan í frumvarpið, það hafa margir náð að gera á undan mér og gert það vel. Ég ætla að standa hér og ræða aðeins um hvaða gildi þetta frumvarp hefur og hvað það þýðir fyrir mig og dóttur mína.

Hér er um að ræða breytingu á vinnumarkaði sem væntanlega mun leiða til bjartari framtíðar, já, ég sagði það, fyrir Leuh Karin Garðarsdóttur Mosty og vinkonur hennar.

Jóhanna af Örk, Rosa Parks, Alice Walker, Audre Lorde, Gloria Steinem, Susan B. Anthony, Simone de Beauvoir, Chimamanda Ngozi Adichie, Eleanor Roosevelt, Jeannette Rankin, Coco Chanel, Helen Keller, Benazir Bhutto, Madame Curie, Cecilia Penifader of Brigstock, Elísabet drottning I., Sacagawea, Harriet Beecher Stowe, Florence Nightingale, Amelia Earhart og frú Vigdís Finnbogadóttir.

Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sagði í viðtali við Frjálsa verslun, með leyfi forseta:

„Ef bjarga á heiminum, sem er í stöðugri hættu, verður að leggja allt kapp á aukna þekkingu kvenna. Jafnrétti kynjanna er stærsta og mikilvægasta verkefni alþjóðasamfélagsins.“

Enn fremur sagði hún, aftur með leyfi forseta:

„Ég var lengi að átta mig almennilega á því hvernig þessi kosning mín lauk upp veröldinni fyrir íslenskum konum. Konur fá kosningarréttinn 1915 en það er eins og þær hafi ekki treyst sér til að taka þátt í stjórnmálum fyrr en það var komið fordæmi um að þær gætu haft áhrif og jafnvel unnið svo mikilvægar kosningar.“

Frú Vigdís varð fyrst kvenna til að verða þjóðkjörinn þjóðarleiðtogi, árið 1980. Í dag erum við komin með nærri 48% kvenkyns þingmenn á Alþingi. Þegar ég tilkynnti vinkonum mínum heima í Bandaríkjunum að ég hefði verið kjörin á Alþingi voru viðbrögðin jákvæð og þær samglöddust mér en þegar ég tilkynnti þeim að konur væru nærri 48% þingmanna trúðu þær mér ekki og fögnuðu fréttinni hástöfum.

Jafnréttisbarátta kvenna er ein mikilvægasta baráttan í sögu mannkyns og það er barátta sem við munum standa að lengi. Hvert skref fram á við er sigur. Hér á undan taldi ég upp konur sem tóku bæði stór og lítil skref á sínum tíma, greiddu leið, ruddu braut fyrir okkur sem sitjum í þessum sal í dag.

Að við skulum vera komin á þann stað að vera að ræða rétt okkar, rétt minn til að fá sömu laun og karlmenn í sama starfi er nokkuð sem sumar þessara kvenna hefðu aldrei trúað þegar þær hófu baráttu sína, baráttu okkar.

Við erum í 1. sæti í jafnrétti samkvæmt mælingu World Economic Forum. Það er árangur sem við eigum að vera stolt af og við ætlum að halda áfram að vera leiðandi. Ég hef oft sagt og mun oft segja að við eigum að þora að gera hlutina öðruvísi, betur, þrátt fyrir að vera ein minnsta þjóð í heimi.

Lögin um jafnlaunavottun eru tæki til að ná fram launajafnrétti. Við sjáum mælingar á kynbundnum launamun, sem er tæplega 8% á almennum markaði og um 7% á hinum opinbera þrátt fyrir að hafa verið með lög sem banna kynbundinn launamun um áraraðir.

Það eru tveir þættir í íslensku samfélagi sem þarf að horfa sérstaklega til til að ná fram jafnrétti sem eru kynbundið ofbeldi og vinnumarkaður, launajafnrétti og fleiri konur í forystu í atvinnulífinu. Meginmarkmið laganna er að útrýma óútskýrðum launamun fyrir árið 2022, enda hefur verið ólöglegt um hálfrar aldar skeið að mismuna fólki eftir kyni. Fyrstu almennu lögin um jafnrétti kvenna og karla voru sett hér á landi árið 1976 með það að markmiði að stuðla að jafnrétti kynjanna á öllum sviðum þjóðfélagsins.

Fullt launajafnrétti myndi það teljast þegar konur og karlar eru að jafnaði með jöfn laun á lífsleiðinni. Enn er langt í land að það náist. Þar koma til ýmsir þættir, óútskýrður launamunur er aðeins einn af þeim. Aðrir þættir í þeirri jöfnu eru ólaunuð störf kvenna inni á heimilum, styttri vinnutími og ýmislegt fleira. Þessir þættir leiða af sér lakari stöðu kvenna við starfslok þar sem lífeyrisréttindi þeirra eru að jafnaði mun minni en karla.

Jafnlaunavottun er stjórntæki, fyrirtæki fara í gegnum vottun hjá óháðum aðila til að leiða í ljós hvort launajafnrétti ríki, sem sagt hvort kynbundinn launamunur sé til staðar. Það verður til þess að menn fara að rýna í málin. Er það ekki jákvætt? Er það ekki eitthvað sem við viljum? Þetta mun leiða til vandaðra vinnubragða við ákvörðun launa og er liður í þeirri pólitísku viðleitni okkar að útrýma kynbundnum launamun.

Það er athyglisvert að fyrirtæki sem hafa nú þegar farið í gegnum þetta ferli sjálfviljug eru jákvæð, alla vega hefur fréttaflutningur um það verið jákvæður og menn tala af jákvæðni. Hér má nefna fyrirtæki á borð við CCP og Lyfju hf. Þetta eru ekki lítil fyrirtæki, þetta eru leiðandi fyrirtæki í þeirri vinnu.

Eins og margir hafa rætt hér nær þetta frumvarp ekki yfir alla þætti í jafnréttisbaráttu. Eftir standa mörg skref sem á eftir að taka og mikið sem þarf að leiðrétta í samfélaginu milli kynjanna.

Ég hlakka til og mun leggja mig fram til þess að fá að upplifa daginn þegar við hættum að ræða ákveðnar starfsgreinar sem annaðhvort kvennastétt eða karlastétt. Til dæmis vil ég fá að velja úr kvenkyns smiðum, pípurum eða bifvélavirkjum þegar ég þarf á þeim að halda eða að þegar ég fer með börnin mín á leikskóla taki á móti þeim hópur af jákvæðum, klárum og skemmtilegum körlum.

Fyrir tveimur árum á leikskólanum sem ég stýrði náði ég að ráða inn sjö karlmenn af 12 starfsmönnum. Við vorum næstum með jafnt hlutfall kvenna og karla og launin voru jöfn — lág en jöfn – og aldrei voru dagarnir annað en farsælir hjá okkur. Það var yndislegt að starfa á leikskólanum á því tímabili. En því miður fóru þeir frá mér allir sjö því að launin voru of lág til þess að þeir gætu starfað þarna lengur. Þeir fóru aftur í nám, ekki til að verða kennarar heldur til að mennta sig til að starfa í öðrum atvinnugreinum þar sem þeir koma til með að fá betri laun.

Annað skref í jafnréttisbaráttu kynjanna sem við þurfum að beita okkur fyrir að verði tekið er að konum og körlum verði gert kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Það er löngu kominn tími á að atvinnurekendur geri nauðsynlegar ráðstafanir til að konum og körlum verði þetta mögulegt, t.d. með því að auka sveigjanleika við skipulagningu á vinnu og vinnutíma. Það er til að mynda að gerast í auknum mæli í Bretlandi. Ég hugsa það þannig að þessi fyrstu skref í að jafna laun séu skref sem við þurfum að taka. Svo tökum við næsta skref og næsta og næsta.

Það væri ánægjulegt að sjá atvinnurekendur styðja við sveigjanleika beggja foreldra til að taka fæðingarorlof, taka af skarið og vera reiðubúnir til að greiða hærri tryggingagjöld í prósentum til að tryggja að feður noti rétt sinn til að vera með nýfæddum börnum sínum. Þakið sem við höfum hækkað virðist ekki vera nógu hátt þar sem okkur var tjáð í hv. velferðarnefnd að karlmenn væru að draga úr töku fæðingarorlofs. Við munum gera eitthvað í því í þessari ríkisstjórn en ég myndi líka vilja sjá atvinnurekendur taka skref. Ég tel að þetta frumvarp muni ýta á þá að gera það.

Sem leikskólastjóri upplifði ég að í flestum tilfellum voru konur heima með veik börn, oftast launalaust. Þarna gæti verið tækifæri fyrir atvinnurekendur til að sýna gott fordæmi og bjóða feðrum sama sveigjanleika og mæður mæta og hvetja foreldra til að skipta veikindadögum barnsins á milli sín ef þeir eru báðir útivinnandi.

Ég veit að þetta frumvarp tekur ekki á öllum jafnréttismálum kynjanna sem við eigum eftir að leiðrétta en ég fagna hverju einasta skrefi sem við tökum í þá átt að jafna stöðu kynjanna. Munið að eitt skref leiðir alltaf að því næsta. Ég mun styðja þetta frumvarp og vænti þess að með þinglegri meðferð muni fleiri þingmenn einnig finna leið til að styðja það, taka þetta mikilvægt skref — og verið viss um að ég er að leita að því næsta.