146. löggjafarþing — 60. fundur,  26. apr. 2017.

jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla.

437. mál
[19:17]
Horfa

félags- og jafnréttismálaráðherra (Þorsteinn Víglundsson) (V):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir ákaflega góða umræðu um þetta mikilvæga mál, bæði í gærkvöldi og í dag. Margt áhugavert hefur komið fram og mig langaði að tæpa aðeins á því helsta sem hér hefur verið nefnt og svara þeim spurningum sem til mín hefur verið beint til frekari skýringar.

Talsvert hefur verið rætt um staðalinn og aðgengi hans. Það er ánægjulegt að sjá hversu góða stöðu ég hef sett hv. þm. Andrés Inga Jónsson í, sem er orðinn ansi vinsæll hér í þinginu sem handhafi eina eintaks staðalsins. En ég hef þó verið fullvissaður um að úr því verði bætt og það skjótt og þykist viss um að þingmenn muni hafa aðgang allir sem einn að staðlinum í það minnsta áður en málið kemur hér til 2. umr.

Það er alveg rétt að það er að mörgu leyti sérstakt þegar löggjöf byggir á staðli sem þessum sem er síðan eingöngu aðgengilegur gegn greiðslu, en það er þó alls ekki einsdæmi. Við þekkjum fjölda slíkra staðla sem eru til grundvallar ýmiss konar löggjöf sem ekki eru fullkomlega aðgengilegir. En þess ber þó að geta að í greinargerð frumvarpsins er farið nokkuð skilmerkilega yfir þær kröfur sem gerðar eru og hvernig fyrirtækjum og stofnunum er gert að vinna til þess að öðlast vottun.

Hér hefur verið talað aðeins um eftirlit með vottun, umfang þess, hvort Jafnréttisstofa sé nægilega vel búin til þess að geta sinnt því, hvort heppilegra væri að slíku eftirliti yrði komið fyrir annars staðar, eins og hjá skattyfirvöldum. Þar er ég sannfærður um að eftirlitinu er réttilega fyrir komið hjá Jafnréttisstofu. Þetta er jafnréttismál og ber að horfa til þess sem slíks. En það má heldur ekkert gleyma þætti aðila vinnumarkaðarins og sér í lagi stéttarfélaga, sem þeim er ætlað í þessu þar sem ég hygg að hiti og þungi eftirlitsins muni alltaf liggja. Þar að auki má heldur ekki gleyma því að við vottun er þungi vinnunnar á fyrirtæki eða stofnun og úttektaraðila. Jafnréttisstofa gengur eingöngu úr skugga um að fyrirtæki eða stofnun hafi uppfyllt skyldu sína um úttekt og vottun. Eftirlitshlutverk Jafnréttisstofu í þessu samhengi er fyrst og fremst að safna saman gögnum og upplýsingum og miðla síðan til stéttarfélaga eftir atvikum.

Kostnaður eða umfang hefur hér verið nefnt, hversu viðamikið þetta er. Hér var tekið dæmi af fyrirtæki sem ætlaði að upphafskostnaður yrði 3–4 milljónir, ef ég tók rétt eftir, með einhverja tugi starfsmanna, það var ekki tilgreint nákvæmlega. Við höfum kannað þetta og teljum þá kostnaðaráætlun talsvert í efri mörkum miðað við þær tölur sem við höfum heyrt sem rauntölur þeirra fyrirtækja sem farið hafa í gegnum slíka úttekt eða vottun hingað til. Tölur í kringum 2 milljónir eru ekki óalgengar þegar kemur að smærri endanum. Í því samhengi er kannski ágætt að hafa í huga að 25 manna fyrirtæki sem greiðir meðallaun í landinu, sem teljast í dag vera um 600.000 kr. á mánuði samkvæmt Hagstofunni, er með launaútgjöld á ári upp á um 200–250 milljónir. 2 milljónir eru innan við 0,1% af árlegum launakostnaði fyrirtækisins. Það held sé algjörlega innan allra skekkjumarka varðandi það hversu íþyngjandi kostnaðarlega slík úttekt er þegar horft er til hagsmunanna hinum megin, sem eru hagsmunir kvenna fyrst og fremst þegar kemur að launajafnrétti.

Í þessu samhengi finnst mér líka áhugavert að halda því til haga að við leggjum alls kyns kvaðir á atvinnulíf. Við leggjum alls kyns kvaðir á stofnanir í þessu samhengi. Sjálfur hef ég lengi talað fyrir einföldu regluverki, öflugu og góðu samkeppnisumhverfi fyrir atvinnulífið, en í þessu samhengi finnst mér dálítið sérstakt að boðberar einfalds regluverks sjái ofsjónum yfir þessu þegar við leggjum talsvert kostnaðarsamar kvaðir á fyrirtæki þegar kemur að skattskilum, ársreikningagerð, endurskoðun o.s.frv., þegar kemur að vinnuvernd og öryggiskröfum á vinnustað, þegar kemur að umhverfisákvæðum ýmiss konar. Allt eru það mikilvæg atriði, við erum hér að gæta hagsmuna samfélagsins, gæta hagsmuna starfsmanna, gæta hagsmuna umhverfis o.s.frv., og teljum fullkomlega réttlætanlegt að leggja þessar kvaðir á atvinnulífið. Þegar kemur að jafnrétti kynjanna tel ég það með engum minni hætti mikilvægt að gæta réttinda starfsfólks. Þó að það hafi vissulega í för með sér einhvern kostnað fyrir atvinnulífið, þá tel ég hann algjörlega minni háttar í þessu samhengi og í samhengi við þá hagsmuni sem í húfi eru.

Aðgengi að upplýsingum var rætt, hvar gögn um t.d. laun liggja og annað þess háttar. Ég held að þar gæti ákveðins misskilnings. Fyrirtæki halda auðvitað utan um launaupplýsingar starfsmanna sinna, vottunaraðili fer síðan yfir launakerfi og launadreifingu innan fyrirtækis, en heldur ekki miðlægan gagnagrunn um launaupplýsingar eða dreifir honum. Það er eftir sem áður með þeim hætti sem þegar tíðkast í gegnum skattstjóra og gegnum staðgreiðsluskrá. Það breytir því í engu aðgengi að launaupplýsingum sem þegar eru fyrir hendi.

Það hefur líka verið talsvert rætt um launaleynd hérna. Það er rétt að halda því til haga að launaleynd hefur verið aflögð með lögum um jafnrétti kynjanna með þeim pósitífa hætti að bannað er að meina starfsfólki eða binda í ráðningarskilmála að upplýsa um kaup og kjör. Það er þegar upp er staðið einstaklingsins að upplýsa um eigin laun, eigin kjör, en ekki fyrirtækis að upplýsa um laun allra starfsmanna sinna. Það er líka mikilvægt að gæta persónuverndar. Það hlýtur að vera viðkomandi launamanns að ákveða hvort hann vilji upplýsa um launakjör sín eða spyrja starfsfélaga sína, en það er bannað að leggja þar einhverjar hindranir. Það er ágætt að hafa í huga þegar horft er til þess frumvarps sem hér er til umræðu.

Jafnlaunavottun er mikilvægt skref í að draga úr launamun kynjanna. Það er auðvitað ekki altæk lausn á þeim launamun sem við sjáum. Hér er ekki í einu vetfangi verið að afnema og útrýma kynbundnum launamun eða jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði fyrir fullt og allt.

Hér hafa fjölmörg atriði verið nefnd sem við eigum auðvitað öll sameiginlega að hafa metnað til að vinna að áfram. Það eru þættir eins og heimilis- eða fjölskylduábyrgð, jafnt aðgengi að fæðingarorlofi, vinnutími hefur verið ræddur hér og hvernig megi stytta hann og hvernig jafna megi stöðu kynja þegar kemur að slíku. Svo er viðfangsefni varðandi kynbundinn eða kynskiptan vinnumarkað sem er ákaflega kynskiptur hér. Þar þurfum við að vinna að því hvernig við jöfnum stöðu kynjanna. En það er samt sem áður mjög ánægjulegt að sjá að stofnun eins og tollstjóraembættið sem farið hefur í gegnum jafnlaunavottun. Þar var augljóslega næsta skref embættisins að velta fyrir sér: Af hverju er vinnustaðurinn svona kynskiptur? Hvað getum við gert innan vinnustaðarins til þess að draga úr þessari kynskiptingu? Af hverju eru það fyrst og fremst karlar sem eru tollverðir en konur sem sinna skrifstofustörfum? Þar komust menn t.d. að þeirri niðurstöðu að 12 tíma vaktir hentuðu konum kannski síður en körlum. Kannski væri ráð að bjóða upp á meiri sveigjanleika í vaktafyrirkomulagi eða stytta vaktir í átta tíma o.s.frv. Þetta þekkjum við úr öðrum atvinnugreinum þar sem vaktatími hefur verið styttur og farið hefur verið í margskiptari vaktir til þess að gera störfin meira aðlaðandi fyrir konur. Það finnst mér mjög jákvætt.

Ég held einmitt að við munum sjá að óbein áhrif þessara laga, verði frumvarpið að lögum, séu ekki minni en beinu áhrifin, þ.e. að fá stjórnendur fyrirtækja og stofnana til þess að huga að kyni í starfsemi sinni. Hvaða hindranir eru mögulega í vegi fyrir starfsframa annars kynsins? Hvað er það sem gerir það að verkum að við fáum síður karla eða konur til tiltekinna starfa? Hvað getum við gert til þess að breyta þeirri mynd?

Við munum aldrei útrýma kynbundnum launamun á vinnumarkaði öðruvísi en með því að ná að jafna stöðu kynjanna þegar kemur að starfsvali, þegar kemur að námsvali. Þar eigum við mikið verk óunnið og þurfum að sýna metnað í þeim efnum ekki síður en þegar kemur að jafnlaunavottuninni sjálfri. Þetta eru allt saman þættir sem við þurfum að horfa til áfram.

Það eru hins vegar líka ákveðnir þættir sem jafnlaunavottun tekur ekki á og er ekki ætlað að taka á. Við erum áfram með mikinn fjölbreytileika í verðlagningu starfa, í samkeppni milli atvinnugreina, samkeppni milli fyrirtækja. Launastig fyrirtækja getur verið mjög ólíkt. Jafnlaunavottun er ekki ætlað að taka á því. Fyrirtæki geta verið missamkeppnishæf um starfsfólk, þau geta verið misvel í stakk búin varðandi það hversu há laun þau geta greitt. Það er ekki hlutverk ríkisvaldsins að stíga þar inn í og reyna einhvern veginn að jafna það. Það er einfaldlega frjáls samkeppni, frjáls markaður, sem ræður þar för. Það er sömuleiðis milli atvinnugreina, þar er auðvitað mjög ólíkt launastig og við munum ekki jafna það með slíkum hætti. Það er auðvitað framleiðnin og verðmætasköpun innan atvinnugreinarinnar sem ræður þegar upp er staðið hvaða launastig hún ræður við.

Þó að ég fagni mjög afstöðu Vinstri grænna og þingmanna þeirra til jafnlaunavottunar kemur kannski ekki á óvart að skoðanir okkar kunni að vera eitthvað örlítið ólíkar þegar kemur að vinnumarkaðnum hvað þetta varðar.

Að því sögðu er ég spenntur að fylgjast með framgangi málsins hjá allsherjar- og menntamálanefnd. Mér þykir mjög ánægjulegt að sjá hversu víðtækan stuðning og jákvæðar undirtektir málið fær í þingsal. Ég held að það eigi eftir að reynast okkur mjög mikilvægt í baráttunni fyrir auknu jafnrétti á vinnumarkaði og fyrir auknu jafnrétti í samfélaginu öllu.

Það má heldur ekki gera lítið úr öðrum þætti sem er kannski minna talað um, af því að hér er alltaf talað um kynbundinn launamun; frumvarpið tekur ekki síður á öðrum ómálefnalegum launamun á vinnumarkaði, t.d. þegar kemur að stöðu innflytjenda á vinnumarkaði, sem við vitum sem eru oft í mun lakari stöðu, fá hæfni sína, menntun og þekkingu oft ekki metna að verðleikum á vinnumarkaði. Þegar öllu er á botninn hvolft byggir frumvarpið á þeirri einföldu aðferðafræði að fyrirtæki og stofnanir verða að byggja upp launakerfi sín á málefnalegum grundvelli, þau þurfa að geta útskýrt með málefnalegum hætti hvað skýrir launadreifingu og launamismunun innan fyrirtækisins eða stofnunarinnar. Þar er þetta að mínu viti ákaflega öflugt tæki sem ég heillaðist strax af þegar ég kynntist jafnlaunavottuninni og þeirri hugmyndafræði sem þar liggur að baki. Hún er tæki sem hefur verið mjög lengi í þróun á vinnumarkaði. Fyrstu skref voru stigin að ég hygg í kjarasamningum árið 2008, og hefur hún verið mótuð í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins.

Frumvarpið sem liggur fyrir þinginu var mótað áfram í nánu samstarfi við Samtök atvinnurekenda og stéttarfélög. Ég er mjög ánægður með þá niðurstöðu sem hér liggur fyrir og treysti því að málið fái mjög góðan framgang í þinginu. Takk kærlega fyrir.