146. löggjafarþing — 62. fundur,  3. maí 2017.

um fundarstjórn.

[15:02]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs til að benda á að mér þykja hæstv. ráðherrar ekki standa sig nægilega vel í að svara þeim spurningum sem til þeirra er beint. Ég beini því til hv. forseta að ýta nú á eftir því að svo verði gert. Sjálfur hélt ég einhvern veginn að þar sem ekki gengju svo mörg mál undan þessari ríkisstjórn þá sætu ráðherrar sveittir við að svara fyrirspurnum. En svo reynist ekki vera.

Ég er með tvær fyrirspurnir til ráðherra. Önnur er frá 23. mars til menntamálaráðherra. Ég hef nú svo sem alveg þolinmæði gagnvart því. Hún tengist starfsmannahaldi á RÚV og ég ætla ekki endilega að gera mikið vesen út af því.

Öllu verra er að ég er með fyrirspurn inni frá 8. mars til hæstv. dómsmálaráðherra sem fjallar um umsækjendur um alþjóðlega vernd. Mér þykir ótækt að hæstv. ráðherra hafi ekki séð sér fært að svara þeirri fyrirspurn. Það helst (Forseti hringir.) því miður allt of mikið í hendur við almenna seinkun og seinlæti í þeim málaflokki, hversu illa gengur að taka þau mál föstum tökum og vinna þau hratt. En ég vil hvetja forseta til að biðja um að þessum fyrirspurnum verði svarað.